Krabbameinsmiðstöð Landspítala
Um Krabbameinsmiðstöð Landspítala
Hlutverk og markmið
Krabbameinsmiðstöð Landspítala var stofnuð árið 2025 sem hluti af uppbyggingu og þróun krabbameinsþjónustu á Íslandi. Miðstöðin starfar samkvæmt alþjóðlegum viðmiðum frá Organisation of European Cancer Institutes (OECI) og er liður í vottun krabbameinsþjónustu og framkvæmd krabbameinsáætlunar stjórnvalda.
Markmið miðstöðvarinnar er að stuðla að samhæfðri, öruggri og gæðamiðaðri þjónustu fyrir fólk með krabbamein, frá greiningu og meðferð til eftirfylgdar. Jafnframt er lögð áhersla á að efla vísindarannsóknir, nýsköpun og stöðugar umbætur í þjónustu.
Sjúklingurinn í forgrunni
Sjúklingurinn er í forgrunni í starfsemi miðstöðvarinnar. Sérstök áhersla er lögð á upplýsingagjöf, þátttöku og stuðning við sjúklinga og aðstandendur á öllum stigum meðferðar.
Rannsóknir og þróun
Rannsóknir eru mikilvægur hluti af starfsemi krabbameinsmiðstöðvarinnar. Markmið er að tengja saman klíníska starfsemi, gæðastarf og rannsóknir þannig að ný þekking nýtist í daglegri þjónustu.
Unnið er að uppbyggingu miðstöðvar krabbameinsrannsókna í samstarfi við Háskóli Íslands með áherslu á þverfaglegar rannsóknir, menntun heilbrigðisstétta og alþjóðlegt samstarf.
Gæði og framtíðarsýn
Stofnun krabbameinsmiðstöðvarinnar er hluti af langtímauppbyggingu krabbameinsþjónustu á Landspítala í samræmi við alþjóðleg viðmið og stefnu stjórnvalda.
Með innleiðingu OECI-staðalsins er lagður grunnur að samfelldum umbótum, gæðamælingum og alþjóðlegum samanburði með það að markmiði að bæta þjónustu, upplifun og árangur fyrir fólk með krabbamein á Íslandi.
Skipurit

