Krabbameinsmiðstöð Landspítala
Stefna Krabbameinsmiðstöðvar Landspítala
Hlutverk Krabbameinsmiðstöðvar er að leiða og samhæfa krabbameinsþjónustu á landsvísu.
Markmiðið er að stuðla að heildstæðri, öruggri, tímanlegri og notendamiðaðri þjónustu með hagsmuni sjúklinga og aðstandenda og jafnt aðgengi að leiðarljósi.
Miðstöðin styður við þróun ferla og gæðastarfs og samþættir þjónustu og rannsóknir þannig að ný þekking nýtist til umbóta í þjónustu og meðferð.
Krabbameinsmiðstöð gegnir leiðandi hlutverki í rannsóknum, nýsköpun og stefnumótun til framtíðar og stuðlar að öflugu rannsóknarumhverfi, menntun og sérhæfingu heilbrigðisstarfsfólks.
Starfið byggir á þverfaglegu samstarfi og felur í sér fræðslu og valdeflingu sjúklinga og aðstandenda.
Sjá nánar um stefnu Krabbameinsstöðvar Landspítala:
