Krabbameinsmiðstöð Landspítala
Stöðluð meðferðarferli krabbameina
Unnið er að stöðlun meðferðarferla fyrir öll krabbamein sem meðhöndluð eru á Landspítala sem hluta af uppbyggingu og vottun Krabbameinsmiðstöðvar samkvæmt viðmiðum Organisation of European Cancer Institutes (OECI).
Stöðluð meðferðarferli fela í sér að skilgreina og samræma leið sjúklings frá tilvísun og greiningu til meðferðar og eftirfylgdar. Markmiðið er að tryggja samfellda, skýra og gæðamiðaða þjónustu þvert á deildir og fagstéttir.
Markmið stöðlunar
Með stöðluðum ferlum er leitast við að:
Stytta biðtíma í greiningu, meðferð og eftirfylgd
Auka jafnræði í þjónustu
Skýra ábyrgð og verkaskiptingu innan þjónustunnar
Bæta yfirsýn yfir ferli sjúklings og samfellu í meðferð
Hluti af stöðluninni er að skilgreina og fylgjast með biðtímum í ferli sjúklinga. Þar er meðal annars horft til:
Tíma frá tilvísun til fyrstu komu
Tíma frá fyrstu komu til greiningar
Tíma frá greiningu til fyrstu meðferðar
Biðtímar eru nýttir sem gæðavísar til að styðja við umbætur og samræmda þjónustu.
Ávinningur fyrir sjúklinga
Stöðluð meðferðarferli geta aukið fyrirsjáanleika og öryggi í þjónustu með því að gera meðferðarferlið skýrara og samræmdara. Til lengri tíma er stefnt að því að þróa aðgengilegar upplýsingar fyrir sjúklinga um ferli, biðtíma og næstu skref í meðferð.
