Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði/Sjúkraliðanemi - HSN Dalvík-Fjallbyggð, Siglufjörður

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026

Sjúkraliði/Sjúkraliðanemi - HSN Dalvík-Fjallbyggð, Siglufjörður

Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Dalvík-Fjallabyggð óskar eftir að ráða sjúkraliða og/eða sjúkraliðanema til starfa.

Um er ræða starf í heimahjúkrun á Siglufirði í 50-60% starfshlufall. Leitað er að ábyrgum og þjónustulunduðum einstakling sem hefur áhuga á fjölbreyttum og krefjandi störfum í heilbrigðisþjónustu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða samkvæmt samkomulagi.

HSN Fjallabyggð starfar á starfsstöðvum í Ólafsfirði, Siglufirði og Dalvík. Á starfsstöðunum starfar samhentur og öflugur hópur fagfólks sem leggur metnað sinn í að veita framúrskarandi heilbrigðisþjónustu. Við leggjum áherslu á vellíðan í vinnu, jákvætt starfsumhverfi og að vera fjölskylduvænn vinnustaður. Hér gefst tækifæri til að starfa í nánu og fjölskylduvænu samfélagi þar sem stutt er í fjölbreytta útivist og góð lífsgæði.

Hér má sjá upplýsingar um HSN í hnotskurn fyrir allar starfsstöðvar

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Veita skjólstæðingum og sjúklingum faglega og einstaklingsmiðaða umönnun

  • Aðstoða við athafnir daglegs lífs og almenna hjúkrun

  • Taka þátt í teymisvinnu og vinna náið með öðrum heilbrigðisstéttum

  • Skrá og miðla upplýsingum samkvæmt verklagi stofnunarinnar

  • Stuðla að velferð, öryggi og vellíðan skjólstæðinga og sjúklinga

  • Önnur tilfallandi verkefni

Hæfniskröfur

  • Fullgilt sjúkraliðapróf og íslenskt starfsleyfi. Staðfesting á námi fyrir nema

  • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum

  • Frábær samskiptahæfni, jákvæðni og sveigjanleiki

  • Áreiðanleiki og helgun í starfi

  • Reynsla og/eða áhugi á teymisstarfi

  • Góð íslensku- og enskukunnátta

  • Gott orðspor og hreint sakavottorð

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.

Með umsókn skal fylgja náms- og starfsferilskrá ásamt kynningarbréfi á íslensku þar sem fram kemur rökstuðningur fyrir hæfni viðkomandi í starfið. Með umsókn skal einnig fylgja afrit af prófskírteinum og íslenskt starfsleyfi. Fyrir nema skal fylgja með staðfesting á námi.

Tekið er á móti rafrænum umsóknum á starfstorg.is með því að smella hér fyrir neðan. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því umsóknarfrestur rennur út. Fólk af öllum kynjum er hvatt til að sækja um starfið.

Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.

HSN vill vera framsækin stofnun, eftirsóknarverður vinnustaður og í fararbroddi í heilbrigðisþjónustu og heilbrigðismenntun á landsbyggðinni. Hlutverk HSN er meðal annars að stuðla að heilbrigði íbúanna með því að veita faglega, samfellda og heildstæða heilbrigðisþjónustu.

Gildi HSN eru: Fagmennska - Samvinna - Virðing.

Starfshlutfall er 50-60%

Umsóknarfrestur er til og með 20.10.2026

Nánari upplýsingar veitir

Kristín Margrét Gylfadóttir

yfirhjúkrunarfræðingur svæðis

Tölvupóstur: kristin.m.gylfadottir@hsn.is

Sími: 432 4300

Lilja Ósmann Guðnadóttir

deildarstjóri

Tölvupóstur: lilja.gudnadottir@hsn.is

Sími: 432 4424

Þjónustuaðili

Heilbrigð­is­stofnun Norður­lands

Upplýsingar um starf

Starf

Sjúkraliði/Sjúkraliðanemi - HSN Dalvík-Fjallbyggð, Siglufjörður

Staðsetning

Norðurland eystra

Starfshlutfall

50-60%

Starf skráð

02.10.2026

Umsóknarfrestur

20.10.2026