Fara beint í efnið

Þjónustuaðili

Þjóðskjala­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Frágangur skjalasafna og stafræn endurgerð skjalasafna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026

Frágangur skjalasafna og stafræn endurgerð skjalasafna

Vegna aukinna sérverkefna óskar Þjóðskjalasafn Íslands eftir að ráða starfsfólk á skjalastjórnar- og skjalavörslusvið safnsins. Helstu verkefni eru við frágang og skráningu pappírsskjalasafna og við stafræna endurgerð. Um er að ræða tímabundin störf út árið 2027 með möguleika á framlengingu. Um 100% stöður er að ræða. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Flokkun, frágangur og skráning pappírsskjalasafna í Þjóðskjalasafni Íslands

  • Flutningur á skjalaöskjum og röðun í hillur

  • Skönnun og ljósmyndun á skjölum úr safnkosti

Hæfniskröfur

  • Háskólamenntun sem nýtist í starfi

  • Menntun í skjalfræði er kostur

  • Þekking og reynsla af skjalasöfnum er æskileg

  • Góð kunnátta

    í algegnum notendaforritum nauðsynleg

  • Góð íslenskukunnátta

  • Kunnátta í ensku og einu Norðurlandamáli er kostur

  • Mjög góð samstarfshæfni, jákvæðni og sveigjanleiki í samskiptum

  • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði, frumkvæði og rík þjónustulund

  • Gott líkamlegt atgervi er mikilvægt þar sem burður á skjalaöskjum er hluti af starfinu

Frekari upplýsingar um starfið

Þjóðskjalasafn Íslands er menningar- og stjórnsýslustofnun sem varðveitir heimildir um sögu þjóðarinnar og leiðir skjalavörslu og skjalastjórn hins opinbera. Um 50 manns starfa hjá Þjóðskjalasafni. Um þessar mundir standa yfir miklar breytingar í starfseminni og því um spennandi tækifæri að ræða fyrir kraftmikinn aðila. Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vefnum skjalasafn.is.

Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is og þarf henni að fylgja starfsferilskrá og ítarlegt kynningarbréf (hvort tveggja á íslensku), þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni umsækjanda sem nýtist í starfi. Áhugasamir einstaklingar, óháð kyni, eru hvattir til að sækja um starfið. Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármála- og efnahagsráðherra við viðkomandi stéttarfélag. Athygli er vakin á því að umsóknir gilda í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Þjóðskjalasafns Íslands við ráðningu í starfið.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 23.11.2026

Nánari upplýsingar veitir

Lea Kristín Guðmundsdóttir

Tölvupóstur: leakristin@intellecta.is

Sigríður Sandholt

Tölvupóstur: sigridur@intellecta.is

Sími: 511-1225

Þjónustuaðili

Þjóðskjala­safn Íslands

Upplýsingar um starf

Starf

Frágangur skjalasafna og stafræn endurgerð skjalasafna

Staðsetning

Höfuðborgarsvæðið

Starfshlutfall

100%

Starf skráð

06.11.2026

Umsóknarfrestur

23.11.2026