Staðfesta skráningu barns í trú- eða lífsskoðunarfélag
Börn eru skráð í trúfélag, lífsskoðunarfélag, utan trúfélaga og lífsskoðunarfélaga við nýskráningu í þjóðskrá þ.e. við fæðingu.
Samkvæmt lögum um skráð trúfélög og lífsskoðunarfélög skal einstaklingur tilkynna um inngöngu eða úrsögn úr trú- eða lífsskoðunarfélagi til þess félags sem í hlut á.
Ef forsjá barns er sameiginleg tilkynnir annar forsjáraðilinn breytinguna á eyðublaði A-281. Hinn forsjáraðilinn þarf að fylla út þetta eyðublað (A-282) innan við viku frá því að beiðni um breytingu er send.
Ef slík staðfesting berst ekki innan viku telst tilkynningin ófullnægjandi og skráningu í þjóðskrá hafnað.
Hafi barn náð 12 ára aldri þarf það að samþykkja breytingu á skráningu á trú- eða lífsskoðunarfélagi.
Þjónustuaðili
Þjóðskrá