Jarðbor með aflþörf undir 1MW er skráningarskyldur. Skrá skal hvern jarðbor fyrir sig.
Rekstraraðili ber ábyrgð á að skráðar upplýsingar um jarðborinn séu réttar.
Umsókn
Eftirfarandi atriði þurfa að koma fram í skráningu:
Upplýsingar um umsækjanda.
Yfirlýsing um að sá sem skráir hafi lesið starfsskilyrði fyrir viðkomandi starfsemi.
Upplýsingar um rekstraraðila.
Upplýsingar um tengilið rekstraraðila við Umhverfis- og orkustofnun
Upplýsingar um viðkomandi jarðbor og tengdan búnað
Upplýsingar um mengunarvarnir, efnanotkun, innra eftirlit, meðhöndlun úrgangs og áætlun um tímabundna stöðvun rekstrar
Aðrar upplýsingar sem umsækjandi vill koma á framfæri. Við þennan lið getur umsækjandi sett inn fylgiskjöl.
Rukkað er tímagjald fyrir úrvinnslu umsókna í samræmi við gjaldskrá Umhverfis- og orkustofnunar. Gæði umsóknagagna getur haft áhrif á afgreiðslu umsóknar og þar með kostnað.
Þegar skráning er samþykkt
Þegar skráning er samþykkt fær ábyrgðarmaður staðfestingu í tölvupósti.
Þjónustuaðili
Umhverfis- og orkustofnun