Skimun fyrir leghálskrabbameini
Eftirlit eftir legnám
Mismunandi forsendur eru fyrir því að einstaklingar gangast undir legnám og því þarf að fara yfir sögu leghálsskimana til að ákvarða eftirlit sem þarfnast innköllunar á vegum Samhæfingarstöðvar krabbameinsskimana.
Einstaklingar sem fara í fullt legnám og eru ekki með sögu um frumubreytingar (CIN2, CIN3 eða AIS) eða HPV-smit fyrir aðgerð þurfa ekki eftirlit.
Einstaklingar sem fara í fullt legnám vegna viðvarandi HPV-smits en hafa ekki greinst með frumubreytingar (CIN2, CIN3 eða AIS) í kvenlíffærum fyrir legnám og engar frumubreytingar sjást í leginu eftir aðgerðina, þurfa enga eftirfylgni eða skimun eftir legnám.
Einstaklingar sem fara í fullt legnám vegna frumubreytinga eða greinast með frumubreytingar (CIN2, CIN3 eða AIS) í vefjasvari eftir legnámið er ráðlagt að fara í sýnatöku 12 mánuðum eftir aðgerð.
Fyrir heilbrigðisstarfsfólk:
Faglegar leiðbeiningar varðandi eftirlit hjá einstaklingum sem hafa farið í legnám
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis