Fara beint í efnið

Skattskylda af tekjum milli landa

Þegar einstaklingur er með tekjur eða eignir í einu landi en býr í öðru gilda ákveðnar reglur um skattskyldu og skattgreiðslur milli landa.

Allar tekjur sem eiga uppruna á Íslandi eru skattskyldar hér, óháð því hvar einstaklingar búa. Þessar tekjur þarf því að gefa upp í skattframtali á Íslandi.

Tekjur greiddar milli landa geta verið skattskyldar í báðum löndum og mörg ríki hafa gert samninga sín á milli um það hvernig skattgreiðslur skiptast á milli þeirra.

Ísland hefur gert marga tvísköttunarsamninga sem eiga að koma í veg fyrir að greiddur sé skattur af sömu tekjum í tveimur löndum. Þessir samningar eru mismunandi eftir löndum og stýra því hverjar endanlegar skattgreiðslur verða.

Í vissum tilvikum getur einstaklingur átt rétt á því að sækja um undanþágu eða lækkun á skattgreiðslum á grundvelli tvísköttunarsamnings.

Þrjár lykilspurningar skipta máli varðandi skattgreiðslur af tekjum milli landa:

  1. Er einstaklingurinn með fasta búsetu á Íslandi?

  2. Hvers konar tekjur er um að ræða?

  3. Hvaða land er um að ræða og er í gildi samningur um skattskyldu gagnvart Íslandi (tvísköttunarsamningur)?

Almennt deila skattyfirvöld upplýsingum milli landa, en það getur verið töf á þeirri miðlun. Ef einstaklingur gætir þess að upplýsa skattyfirvöld í báðum löndum, til dæmis í skattframtali, minnkar það líkur á ofgreiðslu skatta.

Búseta ræður skattskyldu

Þau sem ekki hafa fasta búsetu á Íslandi hafa hér takmarkaða skattskyldu. Í því felst að skylda þeirra til að greiða hér skatt nær bara yfir þær tekjur sem eiga uppruna á Íslandi og skattar eru að öðru leyti greiddir í því landi sem viðkomandi býr í.

Þetta gildir til dæmis um þau sem búa erlendis, en fá héðan tekjur eða eiga hér eignir – og um einstaklinga sem starfa tímabundið á Íslandi (innan við 183 daga á tólf mánaða tímabili).

Annað gildir um þau sem hafa fasta búsetu á Íslandi eða dvelja hér lengur en hálft ár, en þá gildir almenn og ótakmörkuð skattskylda.

Dæmi um skattgreiðslur þeirra sem búa erlendis

Allar tekjur frá Íslandi eru skattskyldar hér, líka hjá einstaklingum sem búa í öðru landi. Eftirfarandi eru algeng dæmi um tekjur á milli landa sem falla undir takmarkaða skattskyldu og upplýsingar um þau áhrif sem tvísköttunarsamning geta haft.

Umsóknir um undanþágur frá skatti á Íslandi og endurgreiðslur

Þegar tvísköttunarsamningar eru í gildi milli Íslands og landsins sem einstaklingur er búsettur í getur verið hægt að sækja um lækkun eða undanþágu frá skatti á Íslandi. Um er að ræða eftirfarandi umsóknir fyrir ólíkar tegundir greiðslna.

Launatekjur og lífeyrisgreiðslur

Undanþága frá skattlagningu launatekna eða lífeyristekna samkvæmt tvísköttunarsamningi (5.49) – leiðbeiningar og umsókn

Athugið að gera þarf grein fyrir launatekjum og lífeyrisgreiðslum í skattframtali á Íslandi.

Aðrar tegundir af greiðslum og tekjum

Dæmi um greiðslur sem falla hér undir eru verktakagreiðslur eða tilteknar fjármagnstekjur.

Undanþága eða lækkun á skattgreiðslum á grundvelli tvísköttunarsamnings (5.42) – leiðbeiningar og umsókn.

Endurgreiðsla af ofgreiddum skatti á grundvelli tvísköttunarsamnings (5.43) – leiðbeiningar og umsókn.

Það er mikilvægt að skoða hvern tvísköttunarsamning fyrir sig og skoða hvað gildir um mismunandi tegundir af tekjum.

Skattframtal

Athugið að ef um er að ræða launatekjur eða lífeyrisgreiðslur þarf áfram að skila skattframtali á Íslandi á hverju ári. Ef skattur hefur þegar verið greiddur á Íslandi en þú áttir rétt á undanþágu, færð þú ofgreiddan skatt endurgreiddan við álagningu næsta árs.

Staðfesting á greiðslum hérlendis

Ef þú þarft að sanna skattgreiðslur þínar á Íslandi gagnvart skattyfirvöldum í landinu sem þú býrð í getur þú sótt um tekjuvottorð hjá Skattinum á eyðublaði RSK 14.10.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn