Skattar af fjármagnstekjum einstaklinga sem búsettir eru erlendis
Einstaklingar sem eru búsettir erlendis og fá fjármagnstekjur vegna eigna eða fjárfestinga á Íslandi þurfa að greiða af þeim skatt hérlendis.
Sérstakar reglur gilda þó um skattgreiðslur á tekjum á milli landa til þess að koma í veg fyrir tvísköttun á tekjum sem eru skattskyldar í fleiri en einu ríki. Það hvernig skattar eru innheimtir og greiddir af fjármagnstekjum getur því ráðist af tvísköttunarsamningi við landið sem þú býrð í.
Mismunandi reglur gilda um ólíkar tegundir fjármagnstekna:
Fjármagnstekjur af leigutekjum eru almennt skattskyldar í því landi sem eignin er staðsett.
Fyrir aðrar tegundir fjármagnstekna eins og vaxtatekjur og arðgreiðslur vegna eignar í hlutabréfum gætir þú átt rétt á lækkun eða fullri undanþágu frá skatti hérlendis.
Viðmið um skattskyldu
Ef tvísköttunarsamningar eru í gildi getur verið hægt að sækja um undanþágu eða lækkun á grundvelli tvísköttunarsamninga.
Tvísköttunarsamningar eru ólíkir og því er mikilvægt að skoða hvern tvísköttunarsamning fyrir sig. Hér eru dæmi um ólíkar tegundir fjármagnstekna og helstu viðmið:
Vaxtatekjur
Einstaklingur sem búsettur er erlendis og fær vexti greidda frá íslenskum aðilum, er skattskyldur hér á landi af þeim greiðslum. Greiða skal 12% skatt af vaxtatekjum ef enginn tvísköttunarsamningur er í gildi.
Með tvísköttunarsamningi getur verið að einstaklingur eigi rétt á undanþágu frá skattskyldu hérlendis eða lækkun eins og dæmin hér að neðan sýna.
Nokkur dæmi um lönd með sérsamninga um fulla undanþágu frá skatti af vaxtagreiðslum:
Danmörk, Noregur, Færeyjar, Svíþjóð, Finnland, Bandaríkin og Bretland
Nokkur dæmi um lönd með samning um lækkun á skatti af vaxtagreiðslum:
Spánn: 5%
Pólland: 10%
Portúgal: 10%
Sjá lista yfir allar undanþágur á grundvelli tvísköttunarsamninga.
Athugið að skattur af vaxtagreiðslum sem haldið er eftir í staðgreiðslu er endanlega álagður skattur og ekki þarf að skila skattframtali á Íslandi séu þetta einu tekjurnar á Íslandi.
Arður
Einstaklingur sem búsettur er erlendis og fær greiddan arð vegna eignar í hlutabréfum í íslenskum félögum er skattskyldur hér á landi af þeim greiðslum. Greiða skal 22% skatt af arðgreiðslum ef enginn tvísköttunarsamningur er í gildi.
Ef tvísköttunarsamningur er í gildi við búseturíki getur móttakandi arðgreiðslunnar sótt um lækkun á afdráttarskatti.
Umsamið skatthlutfall er mismunandi eftir samningum en algengt er að samið hafi verið um 15% skatthlutfall, til dæmis við eftirfarandi ríki:
Norðurlöndin, Spánn, Portúgal, Bretland, Bandaríkin, Pólland
Einhver lönd kveða á um 10% skatthlutfall, til dæmis eftirfarandi ríki:
Ungverjaland, Króatía og Indland
Skoða lista yfir tvísköttunarsamninga og undanþágur.
Athugið að skattur af arðgreiðslum sem haldið er eftir í staðgreiðslu er endanlega álagður skattur og ekki þarf að skila skattframtali á Íslandi séu þetta einu tekjurnar á Íslandi.
Söluhagnaður hlutabréfa
Einstaklingar búsettir erlendis, sem fá söluhagnað við sölu hlutabréfa í íslenskum hlutafélögum eru skattskyldir af þeim tekjum á Íslandi. Greiddur er 22% skattur af slíkum tekjum en þær eru þó ekki staðgreiðsluskyldar.
Ef í gildi er tvísköttunarsamningur
Það fer eftir ákvæðum einstakra tvísköttunarsamninga hvort þörf er á því að skila skattframtali. Í flestum tilvikum er söluhagnaður íslenskra hlutabréfa skattskyldur í því ríki sem viðkomandi býr (heimilisfestisríki).
Til að komast undan skattlagningu á Íslandi þarf sérstaklega að sækja um undanþágu á grundvelli gildandi tvísköttunarsamnings (5.42).
Almennt ber að sækja um undanþágu fyrir lok tekjuárs og sækja þarf um undanþágu árlega.
Sérstakar reglur kunna að gilda um söluhagnað þegar eignarhlutur í fasteignafélögum er seldur. Hægt er að sjá hvort slíkar reglur eiga við á yfirliti yfir framtalsskyldan söluhagnað af hlutabréfum.
Ef skattprósentan er 0% samkvæmt yfirlitinu ber að sækja um undanþágu með fyrrnefndu eyðublaði 5.42. Sé undanþágan samþykkt á ekki að gera grein fyrir tekjunum á skattframtali.
Ef skattprósentan er ekki 0% þarf að gera grein fyrir tekjunum á framtali.
Einnig kunna að gilda sérstakar reglur um skattlagningu söluhagnaðar hafi hlutabréf verið í eigu einstaklings við brottflutning frá landinu og seld eftir flutning. Við þær aðstæður kann skattlagningarréttur Íslands að haldast í ákveðinn tíma vegna hækkunar á virði hlutabréfanna á þeim tíma sem eigandi bréfanna var hér búsettur.
Mismunandi er hversu lengi skattlagningarrétturinn helst, en það fer eftir ákvæðum viðkomandi tvísköttunarsamnings. Í yfirliti yfir framtalsskyldan söluhagnað af hlutabréfum kemur fram hversu lengi skattlagningarrétturinn helst eftir brottflutning í dálkinum „Búsetuskilyrði – tímalengd“.
Ef ekki er í gildi tvísköttunarsamningur
Ef enginn tvísköttunarsamningur er við það ríki sem viðkomandi býr í þarf undantekningarlaust að skila skattframtali. Tekjurnar eru skattlagðar samkvæmt gildandi skattprósentu hverju sinni.
Leigutekjur af fasteign
Tekjur sem einstaklingur búsettur erlendis fær vegna útleigu á fasteign á Íslandi eru alltaf skattskyldar á Íslandi.
Leigutekjur af fasteign þarf að telja fram á skattframtali á Íslandi.
Sömu reglur gilda um skattlagningu og þeirra sem búsettir eru á Íslandi. Sjá nánar um skattlagningu leigutekna af húsnæði.
Umsókn um undanþágu eða lækkun á grundvelli tvísköttunarsamnings
Ef þú býrð í landi sem hefur tvísköttunarssamning við Ísland gætir þú átt rétt á lækkun eða fullri undanþágu frá skatti af fjármagnstekjum hérlendis.
Sjá nánar um undanþágur á grundvelli tvísköttunarsamnings og umsóknarferlið (5.42)
Endurgreiðsla á ofgreiddum skatti
Ef skatti hefur þegar verið haldið eftir á Íslandi en þú átt rétt á undanþágu getur þú sótt um endurgreiðslu á ofgreiddum skatti vegna tvísköttunarsamnings (5.43).
Athugið að umsókn um endurgreiðslu er ekki afgreidd nema umsókn um undanþágu (5.42) hafi þegar verið samþykkt eða sé lögð fram samtímis.
Þjónustuaðili
Skatturinn