Í tvísköttunarsamningum milli landa er meðal annars að finna reglur um skattlagningu fjármagnstekna.
Sérstakar reglur geta átt við um:
Söluhagnað hlutabréfa í fasteignafélögum.
Það þegar einstaklingur hefur söluhagnað af hlutabréfum utan atvinnurekstrar, hafi hlutabréf verið í eigu einstaklings við brottflutning frá landinu og verið seld eftir flutning.
Séu í gildi sérreglur samkvæmt framansögðu er fjallað um þær í 13. grein viðeigandi tvísköttunarsamnings.
Í eftirfarandi köflum er hægt að sjá í hvaða tvísköttunarsamningum slíkar sérreglur eru og í hvaða skattprósentu tekjurnar eru skattlagðar hér á landi. Jafnframt eru upplýsingar um í hversu mörg ár réttur til skattlagningar viðhelst eftir brottflutning frá landinu.