Fara beint í efnið

Skattur af greiðslum vegna framkomu erlends listafólks

Erlent listafólk sem kemur fram í atvinnuskyni hér á landi greiðir tekjuskatt á Íslandi af tekjum sínum fyrir þau störf. Til tekna teljast allar greiðslur og hlunnindi, að undanskilinni gistingu og ferðakostnaði til og frá landinu, ef listamaðurinn greiðir þann kostnað ekki sjálfur.

Þessi meginregla gildir meðal annars um leikarar í leikhúsi eða kvikmynd, listafólk í hljóðvarpi eða sjónvarpi og tónlistarmenn.

Ekki skiptir máli hvort aðili kemur fram á eigin vegum eða í nafni annars eða hvort greiðslan er frá innlendum eða erlendum aðila.

Staðgreiðsla skatts

Tekjur sem erlent listafólk fá greitt vegna skemmtunar hér á landi eru staðgreiðsluskyldar á Íslandi. Þeir sem greiða listamönnunum fyrir framkomu hérlendis ber skylda til að halda eftir staðgreiðslu af þessum tekjum og skila til ríkissjóðs. Greiðendur eiga að gera grein fyrir tekjum og skattgreiðslum erlendra listamanna í rafrænum skilum til ríkisskattstjóra á skilagrein vegna takmarkaðrar skattskyldu.

Tekjuskattur og hlutfall

Hlutfall skatts veltur á því hvort laun og önnur hlunnindi eru greidd til félags eða til einstaklings. Þá skiptir máli hvort greidd er föst fjárhæð eða hlutdeild í tekjum. Skattur er reiknaður af heildartekjum án frádráttar. Einstaklingar eiga ekki rétt á persónuafslætti.

Föst fjárhæð

  • Einstaklingur: 34,94% (20% tekjuskattur + 14.94% meðalútsvar)

  • Félag: 20% tekjuskattur

Hlutdeild af tekjum

  • Einstaklingur: 29,94% (15% tekjuskattur + 14,94% meðalútsvar)

  • Félag: 15% tekjuskattur

Undanþágur og umsóknir

Listafólk frá Bandaríkjunum getur sótt um undanþágu ef heildartekjur þeirra eru undir $10.000 á ári. Þá kveða einhverjir samningar á um að listamenn sem koma fram á kostnað þess ríkis sem þeir eru heimilisfastir í séu undanþegnir í framkomuríkinu.

Til að sækja um undanþágu þarf að fylla út eyðublað RSK 5.42. Með umsókninni þarf að fylgja:

  • staðfesting á því að listamaðurinn komi fram á kostnað heimalands síns

  • staðfesting á skattskyldu — annað hvort með stimpli í reit 21 á eyðublaðinu eða með skattskylduvottorði frá skattyfirvöldum í heimalandinu

Frumrit stimplaðrar umsóknar eða skattskylduvottorðs skal senda í pósti. Ef vottorðið er rafrænt og hægt er að sannreyna það, er rafræn útgáfa fullnægjandi.

Endurgreiðsla á ofgreiddum skatti

Hafi skatti verið haldið eftir en listamaðurinn átt rétt á undanþágu, er hægt að sækja um endurgreiðslu á eyðublaði RSK 5.43. Með umsókninni þurfa að fylgja gögn því til staðfestingar.

Umsókn um endurgreiðslu er ekki afgreidd nema umsókn um undanþágu hafi þegar verið samþykkt eða sótt sé um samhliða.

Staðfesting á greiðslu skatts á Íslandi

Þurfi listamaður að staðfesta við erlend skattyfirvöld að skattur hafi verið greiddur á Íslandi er hægt að sækja um tekjuvottorð hjá Skattinum á eyðublaði RSK 14.10.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn