Fara beint í efnið

Skattfrádráttur erlendra sérfræðinga

Erlendir sérfræðingar á Íslandi geta notið sérstakra skattaívilnana á launum sínum, ef þeir hafa sérþekkingu sem þarf og fluttust til Íslands til að starfa. Þeir starfsmenn sem uppfylla skilgreind skilyrði um erlenda sérfræðinga geta sótt um að fá 25% af launum felld undan skattlagningu fyrstu þrjú árin í starfi.

Bæði sérfræðingar og vinnuveitendur geta sent inn umsókn um skattfrádrátt erlendra sérfræðinga í gegnum Rannsóknarmiðstöð Íslands. Sérstök nefnd, sem Fjármála- og efnahagsráðuneytið skipar, metur hvort skilyrðin séu uppfyllt.

Skilyrði

Starfsmaður telst erlendur sérfræðingur ef eftirfarandi skilyrði eru uppfyllt:

  • Hann hafi ekki verið búsettur eða heimilisfastur hér á landi á næsta 60 mánaða samfelldu tímabili fyrir upphaf starfa hans hér á landi, en þó þannig að fyrstu þrír mánuðir dvalar hérlendis teljast ekki með

  • Hann búi yfir þekkingu sem ekki sé fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli.

Reglan gildir einungis ef hinn erlendi sérfræðingur:

  • er ráðinn til starfa hjá lögaðila sem hefur lögheimili eða fasta starfsstöð hér á landi og sá aðili greiði honum laun sem sérfræðingi; og

  • er ráðinn til að sinna verkefnum er krefjast sérþekkingar og reynslu sem ekki er fyrir hendi hér á landi eða í litlum mæli; og

  • starfar á sviði rannsókna, þróunar og/eða nýsköpunar, kennslu eða við úrlausn og/eða uppbyggingu sérhæfðra verkefna; eða

  • sinnir framkvæmda- eða verkefnastjórnun eða öðrum verkefnum sem eru lykilþættir í starfsemi fyrirtækisins.

Þegar umsókn hefur verið samþykkt greiðir viðkomandi sérfræðingur aðeins tekjuskatt af 75% tekna fyrstu þrjú árin í starfi, bæði í staðgreiðslu og við endanlega álagningu. Launatengd gjöld ásamt barnabótum og vaxtabótum tekur mið af heildarlaunum.

Leiðrétting á afdreginni staðgreiðslu

Launagreiðanda er óheimilt að veita afslátt af skatti fyrr en samþykkt niðurstaða umsóknar liggur fyrir. Þangað til verður launagreiðandi að draga fullan skatt af launum.

Þegar samþykkt á umsókn liggur fyrir má sækja um leiðréttingu á afdreginni staðgreiðslu frá þeim tíma sem sérfræðingur hóf störf hér á landi þangað til umsókn var samþykkt.

Umsókn um endurgreiðslu á staðgreiðslu af launum - Erlendur sérfræðingur

Þjónustuaðili

Skatt­urinn