Fara beint í efnið

Skattskylda námsmanna erlendis

Námsmenn sem dveljast erlendis geta sótt um að halda sínum skattalegu réttindum á Íslandi. Í því felst að við skattlagningu er tekið tillit til þess persónuafsláttar og bóta sem réttur væri til ef lögheimili hefði verið hér á landi allt árið.

Þessi auknu réttindi á Íslandi hafa engin áhrif á skattalega stöðu námsmanna í erlenda ríkinu þar sem námið fer fram.

Athugið að tekjur og eignir erlendis hafa áhrif á skattlagningu hér á landi (Nánar um tvísköttunarsamninga), og ef þú færð barnabætur eða svipaðar greiðslur erlendis lækkar það barnabætur þínar á Íslandi.

Skilyrði umsóknar

  • Búseta á Íslandi síðustu fimm ár fyrir nám erlendis

  • Nám hefst innan þriggja mánaða frá flutningi

  • Námsmaður sé í fullu námi

  • Nám sé stundað við viðurkenndan erlendan framhalds- eða háskóla

Umsóknarferli og gögn

Sækja þarf um árlega í skattframtali. Er það gert með því að haka í reit á forsíðu framtals og láta viðeigandi gögn fylgja. Berist gögn ekki er umsókn hafnað. Á framtali þarf að koma fram póstfang námsmannsins erlendis eða umboðsmanns hér á landi og síðasta lögheimili námsmanns hér á landi.

Eftirfarandi gögn verða að fylgja með umsókn:

  1. Staðfesting á skóla þar sem fram kemur:

    • hvaða nám er stundað á tekjuárinu og hve lengi

    • hvenær nám hófst

    • áætluð námslok

  2. Staðfesting erlendra skattyfirvalda um tekjur eða tekjuleysi námsmanns og maka, svo sem:

    • staðfest ljósrit af erlendum skattframtölum ef tekjur koma þar fram eða

    • skriflegt tekjuvottorð frá erlendum skattyfirvöldum eða

    • erlenda álagningarseðla eða staðfestingu á skattauppgjöri

  3. Staðfesting á barnabótum eða sambærilegum greiðslum, fengnum erlendis á tekjuárinu (ef við á)

Nám sem veitir rétt til að halda skattalegum réttindum á Íslandi

Námsmenn erlendis geta haldið sínum skattalegu réttindum á Íslandi ef:

  • Nám er stundað reglulega við viðurkennda erlenda menntastofnun á framhalds- eða háskólastigi

  • Nemi er í fullu námi

  • Námstími að lágmarki 6 mánuðir (624 klst./ári), nema skiptinám

Til náms í þessu sambandi telst starfsþjálfun, sérhæfing eða öflun sérfræðiréttinda, enda séu skilyrði þau sem sett eru að öðru leyti uppfyllt. Sé gerð krafa um einhvers konar fornám eða tungumálanámskeið áður en háskólanám hefst þá er unnt að sækja um að námið sé samþykkt sem nám sem veitir rétt til að viðhalda skattalegum réttindum hérlendis

Þau sem eru í skiptinámi við erlenda háskóla geta haldið skattalegum réttindum á Íslandi, jafnvel þótt dvöl erlendis sé skemmri en 6 mánuðir — svo framarlega sem þau séu skráð í nám við íslenskan háskóla og önnur skilyrði eru uppfyllt.

Nám sem ekki veitir rétt

  • Nám á grunn- eða menntaskólastigi erlendis sem ekki veitir formleg starfsréttindi eða starfsheiti að námi loknu.

  • Fjarnám frá íslenskum háskóla

Ákvörðun um skattalega heimilisfesti

Ríkisskattstjóri tekur ákvörðun um rétt námsmanns til að halda skattalegum réttindum á Íslandi. Almennar reglur um kærur til skattyfirvalda gilda í þessum tilvikum. Ef ríkisskattstjóri fellst ekki á að námsmaður haldi skattalegum réttindum á Íslandi er skattlagning miðuð við takmarkaða skattskyldu, þ.e. námsmaðurinn er einungis skattlagður hafi hann haft tekjur hér á landi eftir að lögheimili hefur verið flutt frá landinu.

Fjölskylda námsmanns

Dvelji maki námsmanns eða börn hans eldri en 16 ára einnig erlendis og dvöl þeirra er bein afleiðing af námi hans, geta þau einnig sótt um að halda sínum skattalegu réttindum hér á landi. Óvígð sambúð er lögð að jöfnu við hjúskap að því tilskildu að uppfyllt séu skilyrði skattalaga um samsköttun.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn