Fara beint í efnið

Leigutekjur af húsnæði

Þegar húsnæði er leigt út til búsetu leigjanda eða til heimagistingar ferðamanna eru leigutekjur skattlagðar sem fjármagnstekjur (ef viðeigandi skilyrði eru uppfyllt).

Þetta er undantekning frá þeirri meginreglu að tekjur af útleigu húsnæðis séu skattlagðar sem rekstrartekjur.

Leigutekjur vegna búsetu leigjanda

Til þess að leigutekjur af útleigu vegna búsetu leigjanda séu skattlagðar sem fjármagnstekjur þarf að uppfylla eftirfarandi:

  • Um er að ræða útleigu íbúðarhúsnæðis sem fellur undir húsaleigulög.

  • Leigusamningur hefur verið skráður í leiguskrá húsnæðisgrunns Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.

  • Útleigðar íbúðir eru ekki fleiri en tvær.

Þessar leigutekjur bera 25% frítekjumark, þannig að fjármagnstekjuskattur reiknast af 75% leiguteknanna. Leigutekjurnar þarf að skrá í fylgiskjal RSK 3.25 með skattframtali.

Almennt er ekki heimilt að draga kostnað frá slíkum leigutekjum nema kostnað vegna hita og rafmagns, þegar hann er innifalinn í leiguverði og það kemur fram í þinglýstum leigusamningi.

Leiga á móti leigu

Ef þú ert að leigja út húsnæði sem þú bjóst áður í og greiðir á sama tíma leigu fyrir annað húsnæði, mátt þú draga leigugjöld þín frá leigutekjunum. Það er gert með því að gera grein fyrir bæði leigutekjum og leigugjöldum í skattframtali. Þú getur ekki dregið frá hærri greiðslur heldur en leigutekjurnar og getur ekki fært tap sem frádrátt.

Leigutekjur vegna leigu til ferðamanna

Til þess að leigutekjur af heimagistingu til ferðamanna (til dæmis Airbnb) séu skattlagðar sem fjármagnstekjur þarf að uppfylla eftirfarandi:

  • Um er að ræða heimagistingu samkvæmt lögum um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.

  • Heimagistingin hefur verið tilkynnt til sýslumanns.

  • Heildarfjárhæð leigutekna er undir 2.000.000 kr. á ári.

Ekki er leyfilegt að draga neinn kostnað frá leigutekjum af heimagistingu. Leigutekjurnar þarf að skrá í reit 511 í kafla 3.7 á fjármagnstekjusíðu framtals.

Ef heildarfjárhæð leigutekna fer yfir 2.000.000 kr. á tekjuárinu eða ef skráning heimagistingar er felld niður af sýslumanni eru allar leigutekjur ársins skattlagðar sem tekjur af atvinnurekstri.

Ef húsnæðið sem um ræðir er í eigu fleiri einstaklinga mega samanlagðar leigutekjur þeirra ekki fara yfir 2.000.000 kr. á tekjuárinu. Annars eru þær skattlagðar sem tekjur af atvinnurekstri hjá þeim öllum.

Ítarefni

Þjónustuaðili

Skatt­urinn