Fara beint í efnið

Fjármagnstekjur og fjármagnstekjuskattur

Fjármagnstekjur eru tekjur af eignum eða fjárfestingum. Af þeim þarf að greiða fjármagnstekjuskatt, annað hvort við útborgun eða við álagningu eftir úrvinnslu skattframtals.

Ekki er lagt útsvar á fjármagnstekjur og þær hafa engin áhrif við ákvörðun á tekjuskattsþrepi. Hins vegar teljast þær með öðrum tekjum við útreikning á barnabótum.

Fjármagnstekjuskattur er 22%

Frítekjumark

Fyrir vissar fjármagnstekjur er í gildi frítekjumark. Þannig er skattur bara greiddur af þeim hluta sem fer yfir 300.000 krónur á ári hjá einstaklingum og 600.000 krónur hjá hjónum og samsköttuðum aðilum.

Þegar fjármagnstekjuskattur er innheimtur jafnóðum, til dæmis ef þú átt til innstæðu í banka, gerist eftirfarandi:

  1. Í hvert sinn sem bankinn greiðir út vexti er 22% fjármagnstekjuskattur dregin af og staðgreiddur.

  2. Þegar þú hefur skilað skattframtali eru allar fjármagnstekjur ársins bornar saman við frítekjumarkið.

  3. Við álagningu (úrvinnslu skattframtals) færð þú endurgreiðslu, þannig að þú greiðir í raun bara skatt af vaxtatekjum sem fara yfir frítekjumarkið.

Frítekjumark fjármagnstekna er sameiginlegt fyrir vaxtatekjur, arð og söluhagnað í félögum sem skráð eru á skipulega markaði eða markaðstorg fjármálagerninga.

Flokkar fjármagnstekna

Helstu flokkar fjármagnstekna og reglur um skattheimtu af þeim:

Greiðsla fjármagnstekjuskatts

Almennt er fjármagnstekjuskattur af vöxtum og arði staðgreiddur þegar tekjur eru greiddar út. Sá aðili sem greiðir tekjurnar, til dæmis banki, sér þá um að reikna og greiða fjármagnstekjuskatt í ríkissjóð.

Fyrir söluhagnað og leigutekjur er fjármagnstekjuskattur lagður á við álagningu eftir úrvinnslu skattframtals. Það sama gildir ef tekjuskattur af vöxtum og arði er ekki staðgreiddur, til dæmis ef um er að ræða erlendar vaxtatekjur.

Við álagningu er tekið tillit til sameiginlegs frítekjumarks þar sem við á.

Skattframtal

Einstaklingar bera sjálfir ábyrgð á því að fjármagnstekjur séu rétt skráðar í skattframtali.

Flestar fjármagnstekjur eru forskráðar, en nauðsynlegt er að yfirfara þær upplýsingar og bæta við tekjum sem ekki eru forskráðar.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn