Söluhagnaður
Söluhagnaður af eignum einstaklinga sem ekki eru nýttar í atvinnurekstri getur ýmist verið skattskyldur eða skattfrjáls. Það fer meðal annars eftir tegundum eigna og eignarhaldstíma.
Í stuttu máli:
Söluhagnaður er skattlagður við álagningu (eftir skil á skattframtali)
Söluhagnaður telst almennt vera mismunur söluverðs og stofnverðs eigna.
Þegar við á er tekið tillit til áður fenginna fyrninga og söluhagnaðar, auk þess sem sölukostnaður er dreginn frá.
Skattskylda vegna helstu tegunda söluhagnaðar
1. Söluhagnaður af lausafé
Hagnaður einstaklinga af því að selja minni eignir eins og bíla eða húsgögn (svokallað lausafé) er almennt ekki skattskyldur, nema salan tengist atvinnurekstri eða eignanna hafi verið aflað til þess að selja þær með hagnaði.
2. Söluhagnaður af íbúðarhúsnæði
Hagnaður af sölu íbúðarhúsnæðis eða búseturéttar í eigu einstaklings er mismunur á söluverði (að frádregnum sölukostnaði) og stofnverði (kostnaðar- eða kaupverði).
Tvennt getur haft áhrif til lækkunar á stofnverði; annars vegar áður fenginn söluhagnaður og hins vegar skattfrjáls eigin vinna.
Það hvort söluhagnaður íbúðarhúsnæðis telst skattsskyldur ræðst af eignarhaldstíma og rúmmáli íbúðarhúsnæðis:
3. Söluhagnaður af frístundahúsnæði
Það hvort söluhagnaður frístundahúsnæðis telst skattsskyldur ræðst af nýtingu þess og hversu lengi seljandi hefur átt húsnæðið.
Söluhagnaður af frístundahúsnæði er skattfrjáls ef:
húsnæðið hefur verið nýtt af eigendum sjálfum
húsnæðið hefur ekki verið til útleigu gegn endurgjaldi
eignarhald hefur varað að lágmarki í 7 ár
Ef frístundahúsnæði er selt og ofangreind skilyrði eru ekki uppfyllt er söluhagnaður þess að fullu skattskyldur.
Söluhagnaður telst annað hvort mismunur á söluverði og stofnverði eða helmingur söluverðs.
Hafi seljandi átt frístundahúsnæði fyrir árslok 1978 er heimilt að nota fasteignamat í árslok 1979, framreiknað samkvæmt verðbreytingarstuðli, sem stofnverð.
4. Söluhagnaður annarra fasteigna
Söluhagnaður annarra fasteigna, t.d. hesthúsa, bátaskýla, lands eða lóða, er skattsskyldur sem fjármagnstekjur.
Söluhagnaður telst annað hvort mismunur á söluverði og stofnverði eða helmingur söluverðs.
5. Söluhagnaður af hlutabréfum
Söluhagnaður hlutabréfa er skattsskyldur sem fjármagnstekjur.
Almenna reglan er að hagnaður af sölu hlutabréfa er mismunur á kaupverði og söluverði án framreiknings.
Leyfilegt er að draga tap af sölu hlutabréfa frá hagnaði af sölu annarra hlutabréfa á sama ári. Tap á hlutabréfum vegna gjaldþrots má ekki draga frá söluhagnaði af öðrum hlutabréfum.
Ef söluhagnaðurinn er vegna hlutabréfa í félögum sem skráð eru á skipulega verðbréfamarkaði eða markaðstorg fjármálagerninga, þá fellur hann fellur undir frítekjumark vaxtatekna og skattur er aðeins greiddur af þeim hluta arðstekna sem fer yfir frítekjumarkið.
Í frítekjumarki felst að af ákveðnum tegundum fjármagnstekna er skattur bara greiddur af þeim hluta sem fer yfir 300.000 krónur á ári hjá einstaklingum og 600.000 krónur hjá hjónum og samsköttuðum aðilum.
Frítekjumark fjármagnstekna er sameiginlegt fyrir vaxtatekjur, arð og söluhagnað í félögum sem skráð eru á skipulega markaði eða markaðstorg fjármálagerninga.
Dreifing söluhagnaðar
Ef hluti af söluverði eignar er greiddur með skuldabréfi til minnst þriggja ára má dreifa þeim hluta söluhagnaðarins yfir afborgunartíma bréfanna þegar kemur að skattlagningu, en að hámarki í sjö ár. Hér teljast ekki með þær skuldir sem hvíla á seldu eigninni og kaupandi tekur að sér að greiða.
Þessi heimild til dreifingar fellur niður ef skuldaviðurkenning er seld.
Sérreglur gilda um hagnað af sölu bújarða þar sem landbúnaður er stundaður og þá má dreifa söluhagnaði á 20 ár.
Ítarefni
Dreifing söluhagnaðar: 27. grein laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Skattskyldar fjármagnstekjur: C-liður 7. greinar laga nr. 90/2003
Skattskyldir vextir, afföll og gengishagnaður: - 8. grein laga nr. 90/2003
Staðgreiðsla fjármagnstekna: Lög nr. 94/1996
Söluhagnaður af hlutabréfum: 18. grein laga nr. 90/2003
Söluhagnaður af íbúðarhúsnæði: 17. grein laga nr. 90/2003
Söluhagnaður af landi, lóð eða t.d. sumarbústöðum: 15. grein laga nr. 90/2003
Söluhagnaður af lausafé: 16. grein laga nr. 90/2003
Reglur ríkisskattstjóra um hlunnindi, tekjur og frádrátt: Skattmat
Þjónustuaðili
Skatturinn