Höfundaréttargreiðslur vegna síðari afnota
Greiðslur af höfundarverki eftir að það hefur verið gert aðgengilegt almenningi eru skattskyldar sem fjármagnstekjur.
Höfundar og aðrir rétthafar (einstaklingar) eiga að greiða fjármagnstekjuskatt af greiðslum fyrir afnot af verkum þeirra. Þetta á við þegar höfundarverkin hafa verið gerð aðgengileg almenningi og viðkomandi ber ótakmarkaða skattskyldu hér á landi.
Einstaklingar sem fá höfundarréttargreiðslur eiga að telja þær fram á skattframtali sínu og greiðendur með skilaskyldu eiga að draga staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts af þeim. Þetta á við um greiðslur til allra rétthafa, óháð því hvort þeir eru sjálfir höfundar að viðkomandi verkum eða hvort þeir stundi atvinnurekstur.
Greiðslur til lögaðila
Ef höfundarréttargreiðslur ganga til lögaðila (félaga) eru þær færðar sem rekstrartekjur og hvorki á að draga af þeim staðgreiðslu samkvæmt lögum nr. 45/1987 né staðgreiðslu fjármagnstekjuskatts samkvæmt lögum nr. 94/1996.
Þjónustuaðili
Skatturinn