Arður
Arður er greiðsla sem hluthafar fá frá félagi vegna eignarhalds á hlutum eða hlutabréfum.
Í stuttu máli:
Greiða þarf fjármagnstekjuskatt af arði.
Arður af hlutabréfum í félögum sem skráð eru á skipulega markaði eða markaðstorg fjármálagerninga fellur undir sameiginlegt frítekjumark fjármagnstekna.
Arður getur verið greiddur í peningum eða í öðrum verðmætum.
Við útborgun arðs er fjármagnstekjuskattur oft staðgreiddur af því félagi sem greiðir arðinn. Ef arður er greiddur án staðgreiðslu, til dæmis frá erlendu félagi, er fjármagnstekjuskattur greiddur við álagningu.
Arður telst sem tekjur á því ári sem ákvörðun um úthlutun er tekin, ekki endilega þegar hann er greiddur út.
Frítekjumark vegna arðs
Arður af hlutabréfum í félögum sem skráð eru á skipulega markaði eða markaðstorg fjármálagerninga fellur undir sameiginlegt frítekjumark fjármagnstekna. Skattur er aðeins greiddur af þeim hluta arðstekna sem fer yfir frítekjumarkið.
Í frítekjumarki felst að af ákveðnum tegundum fjármagnstekna er skattur bara greiddur af þeim hluta sem fer yfir 300.000 krónur á ári hjá einstaklingum og 600.000 krónur hjá hjónum og samsköttuðum aðilum.
Frítekjumark fjármagnstekna er sameiginlegt fyrir vaxtatekjur, arð og söluhagnað í félögum sem skráð eru á skipulega markaði eða markaðstorg fjármálagerninga.
Óheimil úthlutun arðs
Ef um er að ræða óheimila úthlutun arðs er litið á þær tekjur sem annað hvort laun eða gjöf. Slíkar greiðslur eru skattlagðar samkvæmt almennum tekjuskattshlutföllum og útsvari.
Arður af erlendum hlutabréfum
Arð af erlendum hlutabréfum á að skrá sem tekjur á skattframtali. Miða á við kaupgengi þess tíma þegar arður var greiddur út.
Hafi skattur verið greiddur af arði erlendis þarf að gera grein fyrir því á skattframtali og láta fylgja með gögn því til staðfestingar.
Ítarefni
Skattskyldar fjármagnstekjur: C-liður 7. greinar laga nr. 90/2003, um tekjuskatt
Skattskyldur arður: 11. grein laga nr. 90/2003
Staðgreiðsla fjármagnstekna: Lög nr. 94/1996
Reglur ríkisskattstjóra um hlunnindi, tekjur og frádrátt: Skattmat
Þjónustuaðili
Skatturinn