5.42: Undanþága eða lækkun á skattgreiðslum samkvæmt tvísköttunarsamningi
Ef tvísköttunarsamningar eru í gildi milli Íslands og þess lands sem einstaklingur er búsettur í getur verið hægt að sækja um lækkun eða undanþágu frá skatti á Íslandi.
Með þessu eyðublaði getur einstaklingur sem búsettur er erlendis sótt um lækkun eða fulla undanþágu frá skatti af fjármagnstekjum og öðrum greiðslum á grundvelli tvísköttunarsamnings.
Athugið að önnur umsókn gildir fyrir launatekjur og lífeyri (5.49).
Lesa nánar um skattgreiðslur af tekjum milli landa.
Það er mismunandi eftir tvísköttunarsamningum hvort hægt er að sækja um fulla undanþágu eða lækkun. Skoða tvísköttunarsamninga eftir löndum.
Hvaða tekjur gætu fallið undir undanþágu?
Greiðslur fyrir þjónustu eða starfsemi innta af hendi hérlendis, til dæmis verktakagreiðslur.
Tekjur af leigu, afnotum eða rétti til hagnýtingar á lausafé, einkaleyfum, hvers konar réttindum eða sérþekkingu, svo og af söluhagnaði vegna slíkra eigna.
Tekjur af íslenskum hlutabréfum, bæði arður og söluhagnaður.
Vaxtatekjur.
Umsóknarferli og fylgigögn
Þetta þarf að fylgja umsókninni:
Staðfesting á skattskyldu í landinu sem þú býrð í.
Stimpill í reit 21 á umsóknareyðublaðinu eða skattskylduvottorð útgefið af skattyfirvöldum í búsetulandi. Athugið að bandarísk skattayfirvöld nota eigið eyðublað, Form 6166, í stað stimpils.
Ef skattur hefur þegar verið dreginn af
Ef skatti hefur þegar verið haldið eftir af tekjum þínum getur þú átt rétt á endurgreiðslu. Þú getur sótt um endurgreiðslu á ofgreiddum skatti vegna tvísköttunarsamnings (5.43) samhliða þessari umsókn.