Fara beint í efnið
Skatturinn Forsíða
Skatturinn Forsíða

Skatturinn

Reglur um skattmat

Í upphafi hvers árs skal ríkisskattstjóri gefa út reglur um mat á hlunnindum og öðrum tekjum og frádrætti sem meta þarf til verðs samkvæmt lögum um tekjuskatt. Reglur þessar eru auglýstar árlega og birtar í B-deild Stjórnartíðinda og gilda bæði við ákvarðanir á staðgreiðsluári og í skattframtali fyrir viðkomandi tekjuár.

Skattmatið gildir um alla þá sem njóta hlunninda eða annarra gæða sem telja ber til tekna og meta þarf til verðs, óháð starfssambandi milli þess sem lætur af hendi og hins sem nýtur. Almenna reglan er að meta skal hlunnindi og gæði til tekna á gangverði eða markaðsverði nema við eigi sérstakt skattmatsverð sem ákvarðað er í reglunum.

Í skattmatinu er einnig kveðið á um hvað ekki skal telja til tekna hjá launamanni, s.s. eins og almennar kaffiveitingar á starfsstað, þátttöku í námskeiðum sem beint tengjast starfi viðkomandi og kostnaði við ýmsa viðburði sem standa starfsmönnum öllum til boða.

1. Almennt um mat á hlunnindum

2. Sérstakt tekjumat

3. Frádráttur vegna ökutækjastyrks og dagpeninga

4. Frádráttur vegna fósturs barna

Ef framteljandi hefur fengið greiðslur vegna barna sem sett eru í fóstur hjá honum af barnaverndarnefnd eða meðferðarstofnunum ber að tekjufæra þær greiðslur. Færa má til frádráttar sannanlegan kostnað sem beint tengist þessum greiðslum. Einnig má færa, í stað sannanlegs kostnaðar, frádrátt sem svarar til tvöfalds barnalífeyris vegna hvers barns, en þó aldrei hærri fjárhæð en greiðslunum nemur. Sé tekið fram í samningi milli sveitarfélags og framteljanda að greiðslur vegna fósturbarns miðist við að framfærslueyrir barnsins teljist vera hærri en nemur tvöföldum barnalífeyri er heimilt að færa umsamda fjárhæð vegna framfærslu til frádráttar í stað sannanlegs kostnaðar. Séu auk framfærslueyris greidd fósturlaun teljast þau ætíð til skattskyldra tekna án frádráttar. Þessar reglur eiga þó ekki við þegar um er að ræða reglubundna starfsemi sem felst í að taka börn í fóstur frá barnaverndarnefnd eða meðferðarstofnunum. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrartekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.

5. Frádráttur vegna dagvistunar eða sumardvalar barna

Greiðslur vegna dagvistunar barna og sumardvalar á að gera upp sem rekstrartekjur. Til frádráttar má færa rekstrarkostnað eftir almennum reglum þar um. Þó má í stað frádráttar sem byggist á sannanlegum kostnaði færa til frádráttar 315 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 625 kr. fyrir hvern veittan hádegis- eða kvöldverð. Vegna 12 ára barna og eldri er þó heimilt að færa til frádráttar 408 kr. fyrir hvern veittan morgunverð eða síðdegishressingu og 813 kr. fyrir hvern hádegisverð eða kvöldverð. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri en innheimt var fyrir fæði samkvæmt gjaldskrá.

Í stað sannanlegs viðhaldskostnaðar húsnæðis og húsbúnaðar, kostnaðar vegna hreinlætisvara, föndurvara, bóka, bifreiðakostnaðar, gæsluvallagjalda o.þ.h. má færa til frádráttar á móti öðrum tekjum en vegna fæðissölu, 25% af þeim tekjum. Ef um sumardvöl er að ræða má færa til frádráttar 20% af tekjum án fæðissölu, enda sé um gistingu að ræða. Slíkur frádráttur má þó aldrei vera hærri fjárhæð en innheimt er vegna þessara liða samkvæmt gjaldskrá.

6. Frádráttur hjá stuðningsfjölskyldum fatlaðra barna

Greiðslur til stuðningsfjölskyldna fatlaðra barna teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað vegna umönnunar og dvalar barnanna. Í stað sannanlegs kostnaðar má færa frádrátt eftir sömu reglum og samkvæmt kafla 5 að framan. Sé um kostnað að ræða sem leiðir af sérþörfum barnsins vegna fötlunar má færa þann kostnað til frádráttar, auk frádráttar samkvæmt skattmati þessu, enda sé gerð sérstök grein fyrir honum.

7. Frádráttur vegna vistunar aldraðra og öryrkja

Greiðslur vegna vistunar aldraðra eða öryrkja í heimahúsum teljast að fullu til skattskyldra tekna en á móti má færa beinan kostnað sem af vistuninni leiðir. Í stað sannanlegs kostnaðar er heimilt að færa til frádráttar á móti greiðslum fjárhæð sem svarar til tvöfaldrar grunngreiðslu örorkulífeyris, en þó aldrei hærri fjárhæð en nemur greiðslunum. Þessi regla á þó ekki við ef um er að ræða atvinnurekstur. Þá skal telja greiðslur til tekna sem rekstrartekjur og rekstrarkostnað til frádráttar eftir almennum reglum þar um.

8. Fæðisfrádráttur hjá launagreiðanda

Launagreiðendur sem ekki færa sérreikning yfir fæðiskostnað launamanna sinna mega draga frá tekjum sínum af atvinnurekstri eða sjálfstæðri starfsemi 2.003 kr. fyrir hvern heilan fæðisdag sem þeir láta launamönnum sínum í té fæði án endurgjalds. Sama gildir um fæði sem launagreiðandi lætur fjölskyldu launamannsins í té án endurgjalds, enda séu hlunnindi þessi talin launamanni til tekna, sbr. lið 2.7.