Dagpeningar vegna ferðalaga
Dagpeningar eru greiddir vegna ferðalaga launþega vegna vinnu og koma í stað endurgreiðslu útlagðs kostnaðar. Dagpeningum er ætlað að standa undir kostnaði vegna fjarveru frá heimili, til dæmis vegna gistingar og fæðis.
Við útreikning skatta má draga kostnað frá dagpeningum ef öll skilyrði eru uppfyllt:
Dagpeningarnir voru greiddir vegna tilfallandi ferða á vegum launagreiðanda.
Dagpeningarnir voru greiddir vegna ferða utan venjulegs vinnustaðar.
Launþegi getur sýnt fram á að hafa greitt ferðatengdan kostnað samkvæmt reikningi.
Í bókhaldi launagreiðanda og launþega er að finna gögn um tilefni ferðar, fjölda dvalardaga, fjárhæð ferða- eða dagpeninga, auk nafns og kennitölu launþega.
Í gildi eru hámörk varðandi upphæðir dagpeninga í skattalegu tilliti. Þau hámörk byggja á ákvörðun Ferðakostnaðarnefndar ríkisins um dagpeninga ríkisstarfsmanna og gilda um alla launþega óháð því hver launagreiðandi er.
Ef greiðslur vegna dagpeninga eru hærri en gildandi mörk hverju sinni þarf að borga skatt af mismuninum.
Reglur um hámark frádráttar frá dagpeningagreiðslum eru birtar í skattmati, en geta breyst við ákvörðun ferðakostnaðarnefndar. Hér fyrir neðan er að finna yfirlit yfir þessar upphæðir sem geta verið breytilegar innan ársins. Fyrir erlendar greiðslur er miðað við svokallað SDR gengi, sem má finna í gengisskráningu Seðlabankans.
Hvenær má draga kostnað frá dagpeningum?
Ef starfsmaður er ráðinn til starfa á ákveðnum stað telst það venjulegur vinnustaður hans, jafnvel þótt sá staður sé fjarri heimahögum eða starfsstöð launagreiðanda. Reglur um frádrátt dagpeninga eiga þá almennt ekki við.
Ef ferðir eru reglulegur hluti starfsins, til dæmis þegar starf felst í vöruflutningum um landið, er ekki heimilt að draga kostnað frá dagpeningum.
Tímabundin störf erlendis
Almennar reglur um frádrátt dagpeninga vegna ferðalaga eiga ekki við ef starfsmaður starfar tímabundið erlendis fyrir íslenskan launagreiðanda, til dæmis þarf þá ekki að skila inn reikningum fyrir fæðiskostnað.
Í stað þess má draga frá sérgreindum greiðslum vegna uppihalds:
allt að 30 SDR á dag
í allt að eitt ár
Stuttar heimsóknir til Íslands á tímabilinu hafa ekki áhrif á þessar reglur.
Fjárhæðir
Ítarefni
Reglur ríkisskattstjóra um hlunnindi og frádrátt: Skattmat
Fylgiskjal með skattframtali: Dagpeningar RSK 3.11
Lagagrein um hámark frádráttar frá dagpeningum (nr. 90/2003)
Þjónustuaðili
Skatturinn