5.49 - Undanþága frá skattlagningu launatekna eða lífeyristekna samkvæmt tvísköttunarsamningi
Ef tvísköttunarsamningar eru í gildi milli Íslands og þess lands sem einstaklingur er búsettur í getur verið hægt að sækja um lækkun eða undanþágu frá skatti á Íslandi.
Með þessu eyðublaði getur einstaklingur sem búsettur er erlendis sótt um lækkun eða fulla undanþágu frá skatti af launatekjum eða lífeyri. Til þess þarf samningurinn að kveða á um að greiðslurnar skuli einungis skattlagðar í því landi sem viðkomandi býr í.
Athugið að önnur umsókn gildir fyrir fjármagnstekjur og aðrar greiðslur (5.42).
Lesa nánar um skattgreiðslur af tekjum milli landa.
Hvaða tekjur gætu fallið undir undanþágu?
Þú starfar í fjarvinnu erlendis fyrir íslenskt fyrirtæki.
Þú færð greiddan lífeyri eða greiðslur frá almannatryggingum frá Íslandi.
Umsóknarferli og fylgigögn
Þetta þarf að fylgja umsókninni:
Staðfesting skattyfirvalda í búsetulandi þínu um skattskyldu og heimilisfesti (frumrit). Ekki þarf að senda frumrit vottorðs frá Belgíu, Lettlandi, Portúgal eða Spáni, eða ef hægt er að sannreyna það á öruggan hátt.
Ef sótt er um undanþágu vegna launa þarf að fylgja ráðningarsamningur eða staðfesting vinnuveitanda um að starfið fari fram erlendis (komi það ekki fram í ráðningarsamningi).
Skattframtal á Íslandi og erlendis
Þrátt fyrir samþykkta undanþágu þarft þú áfram að skila skattframtali til íslenskra skattyfirvalda á hverju ári. Tekjurnar eru einnig framtalsskyldar í búsetulandi þínu.
Ef skattur hefur þegar verið dreginn af
Hafi skattur verið greiddur á Íslandi en þú áttir rétt á undanþágu færð þú ofgreiddan skatt endurgreiddan við álagningu næsta árs.