Fara beint í efnið

Skattskylda af tekjum milli landa

Ótakmörkuð skattskylda á Íslandi

Fastri búsetu á Íslandi fylgir almenn og ótakmörkuð skattskylda.

Í almennri og ótakmarkaðri skattskyldu felst meðal annars að allar erlendar tekjur þeirra sem hafa fasta búsetu á Íslandi þarf að telja fram til skatts hér á landi. Sama gildir um erlendar eignir þeirra.

Algengustu dæmi um ótakmarkaða skattskyldu þegar kemur að tekjum milli landa:

  1. Þau sem hafa fasta búsetu á Íslandi.

  2. Þau sem dvelja á Íslandi lengur en samtals 183 daga á 12 mánaða tímabili. Eðlileg fjarvera frá Íslandi vegna orlofs og þess háttar telst hluti af dvölinni. Sama viðmið á við ef unnið er um borð í loftfari eða skipi sem er skráð á Íslandi.

  3. Þau sem hafa flutt úr landi (fellt niður heimilisfesti) en hafa ekki lagt fram viðeigandi gögn um að þau séu skattskyld í öðru ríki.

Þau sem dveljast erlendis við nám geta sótt um að halda hér á landi skattalegri heimilisfesti og haldið þannig öllum réttindum sem því fylgja. Sjá nánar um skattskyldu námsmanna erlendis.

Ríkisskattstjóri úrskurðar um það hverjir teljast heimilisfastir hér á landi, byggt á reglum laga um lögheimili, eftir því sem við á. Úrskurð ríkisskattstjóra má kæra til yfirskattanefndar.

Þjónustuaðili

Skatt­urinn