Fara beint í efnið

Skráning í sambúð

Fólk sem er í samvistum og er með sama lögheimili en er ekki gift eða í óupplýstri hjúskaparstöðu getur skráð sig í sambúð. Skráningardagur í þjóðskrá miðast samkvæmt lögum ávallt við móttökudagsetningu beiðnar.

Ekki er hægt að skrá erlenda ríkisborgara með óupplýsta hjúskaparstöðu í sambúð. Til þess að unnt sé að skrá fólk með óupplýsta hjúskaparstöðu í sambúð þarf viðkomandi að upplýsa um hjúskaparstöðu með viðeigandi skjölum, t.d. hjúskaparstöðuvottorði frá heimalandi. Erlend hjúskaparstöðuvottorð mega ekki vera eldri en 6 mánaða.

Engin heildarlög gilda um skráða sambúð í þjóðskrá og það fer eftir aðstæðum og málaflokkum hver réttindi sambúðarfólks eru. Skráð sambúð í þjóðskrá hefur meðal annars áhrif á skráningu faðernis og forsjá barna í þjóðskrá.

Annar þeirra einstaklinga sem ætla að skrá sig í sambúð fyllir út tilkynninguna, en sambúðarmakinn þarf að auki að fylla út staðfestingu sambúðaraðila vegna skráningar í sambúð.

Tilkynntu sambúð í þjóðskrá

Þjónustuaðili

Þjóð­skrá