Öryggi og réttindi sjúklinga
Aðgengi að heilsugæslustöð
Hver einstaklingur á rétt á þjónustu heilsugæslu í sinni heimabyggð, að jafnaði á þeirri stöð sem er næst heimili hans.
Hægt er að leita til allra heilsugæslustöðva landsins (bóka tíma) eftir þörf og staðsetningu hverju sinni. Einnig eru margar heilsugæslustöðvar með síðdegismóttöku vegna bráðaeinkenna eða stuttra erinda sem ekki geta beðið. Almennt er bið eftir tímum á dagvinnutíma á öllum heilsugæslustöðvum.
Í 17. grein reglugerðar um heilbrigðisumdæmi og hlutverk, starfsemi, þjónustu heilsugæslustöðva, heilbrigðisstofnana og sjúkrahúsa segir segir:
Þrátt fyrir skiptingu landsins í heilbrigðisumdæmi skulu notendur heilbrigðisþjónustu eiga jafnan rétt á að leita til þeirrar heilsugæslustöðvar sem þeir kjósa.
Þjónustuaðili
Embætti landlæknis