Þeir sem vilja reka leigubíl í sinni eigu eða umráðum þurfa rekstrarleyfi frá Samgöngustofu.
Ferlið
Sækja námskeið hjá Ökuskólanum í Mjódd
Sækja um rekstrarleyfi hjá Samgöngustofu og skila inn öllum gögnum
Uppfylla skilyrði fyrir rekstrarleyfi
Samgöngustofa gefur út staðfestingu vegna breytingaskoðunar svo hægt sé að fara með bílinn í skoðun til að breyta honum í leigubíl
Rekstrarleyfi gefið út til fimm ára
Fylgigögn
Mikilvægt er að skila inn öllum fylgigögnum með umsókn.
Afrit af ökuskírteini
Mynd í leyfisskírteini (nýleg og skýr andlitsmynd með hlutlausum bakgrunni)
Búsforræðisvottorð - island.is
Staðfesting á tryggingu fyrir leigubíl frá tryggingarfélagi
Staðfesting á að opinber gjöld séu ekki í vanskilum - island.is eða Skatturinn (ef umsækjandi er lögaðili þarf að skila staðfestingu á kennitölu lögaðilans)
Afrit af undirrituðum samningi við leigubílastöð ef rekstrarleyfishafi ætlar að framselja stöð skyldur sínar
Ef umsækjandi hefur verið með skráð lögheimili erlendis þarf einnig að skila sakavottorði frá viðkomandi landi/löndum samkvæmt 3. tölul. 2 mgr. 6. gr laga um leigubifreiðaakstur
Umsækjendur sem eru með ríkisfang utan Evrópska efnahagssvæðisins skulu framvísa dvalar- og atvinnuleyfi
Samgöngustofa hefur yfirlit yfir þá sem hafa lokið leigubílanámskeiðum og aflar upplýsinga úr sakaskrá Íslands. Því þarf ekki að skila inn slíkum gögnum nema annað sé tekið fram.
Ef umsækjandi hefur gerst sekur um alvarleg ofbeldisbrot er ekki hægt að veita leyfi fyrr en að 10 árum liðnum. Ef um kynferðisbrot er að ræða er ekki hægt að veita leyfi samkvæmt 3. tölul. 2 mgr. 6. gr laga um leigubifreiðaakstur.
Afgreiðsla umsókna
Samgöngustofa gefur út rekstrarleyfi til fimm ára þegar öllum skilyrðum er fullnægt og bíllinn hefur verið skráður sem leigubíll
Þegar gögn vantar með umsókn eða skilyrðum er ekki fullnægt lætur Samgöngustofa vita með tölvupósti
Afgreiðsla rekstrarleyfis er allt að 15 virkir dagar
Kostnaður
Kostnaður við rekstrarleyfi er samkvæmt gjaldskrá Samgöngustofu og er 16.480 krónur
Kostnaður við ökunám og námskeið fyrir leigubíla fer eftir gjaldskrá ökuskóla
Greiða þarf fyrir þau vottorð og gögn sem afla þarf hjá öðrum stofnunum

Þjónustuaðili
Samgöngustofa