Fara beint í efnið
Samgöngustofa Forsíða
Samgöngustofa Forsíða

Samgöngustofa

Breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur taka gildi 1. júní

21. maí 2026

Samgöngustofa vekur athygli á breytingum á lögum um leigubifreiðaakstur sem taka gildi 1. júní 2026.

Samgöngustofa hefur sent rekstrarleyfishöfum og leigubifreiðastöðvum upplýsingabréf um breytingar á lögum um leigubifreiðaakstur sem taka gildi 1. júní 2026.

Helstu breytingar:

  • Allir sem reka leigubifreið þurfa að vera skráðir á leigubifreiðastöð með gilt leyfi frá Samgöngustofu.

  • Leigubifreiðastöðvar þurfa að skrá allar ferðir rafrænt. Þar á meðal eru upplýsingar um upphaf og lok ferðar, leiðina og greiðslu. Gögnin þarf að geyma í að minnsta kosti 60 daga.

  • Rafræn skráningarkerfi stöðvanna skulu fara í árlega úttekt hjá óháðum aðila sem Samgöngustofa hefur samþykkt.

  • Stöðvar þurfa að bjóða upp á ferli fyrir kvartanir. Farþegar eiga að geta tilkynnt óeðlilega hátt verð eða slæma þjónustu. Leigubifreiðastjórum verður skylt að upplýsa farþega um þessi réttindi.

  • Sömu kröfur gilda um leyfishafa sem eru skráðir á eigin stöð og leyfishafa með starfsleyfi til reksturs leigubifreiðastöðvar.