Fara beint í efnið

Prentað þann 22. nóv. 2024

Breytingareglugerð

1712/2023

Reglugerð um breytingar á reglugerðum um þvingunaraðgerðir sem varða Gíneu, Túnis, Zimbabwe, Bosníu og Hersegóvínu, Belarús, Myanmar, Úkraínu, Burundí, Venesúela, Nicaragua, Líbanon, Moldóvu, Íran og gegn netárásum.

1. gr. Almenn ákvæði.

Með reglugerð þessari eru sett ákvæði um þvingunaraðgerðir sem varða Gíneu, Túnis, Zimbabwe, Bosníu og Hersegóvínu, Belarús, Myanmar, Úkraínu, Burundí, Venesúela, Nicaragua, Líbanon, Moldóvu, Íran og aðgerðir gegn netárásum til að framfylgja ályktunum öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, ákvörðunum framkvæmdanefnda þess um þvingunaraðgerðir og/eða sem íslensk stjórnvöld hafa ákveðið að framfylgja á grundvelli yfirlýsingar ríkisstjórna aðildarríkja Evrópusambandsins og Fríverslunarsamtaka Evrópu um pólitísk skoðanaskipti, sem er hluti samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög nr. 2/1993.

Ákvæði reglugerðar nr. 119/2009 um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða eiga við um framkvæmd reglugerðar þessarar.

2. gr. Þvingunaraðgerðir.

Eftirfarandi reglugerðum er breytt sem hér segir:

  1. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Gíneu, nr. 277/2015.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.8.
    2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.5.
  2. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Túnis, nr. 283/2015.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.8 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.8.
    2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.13.
  3. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Zimbabwe, nr. 744/2015.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.16 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.16.
    2.23 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.23.
  4. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Bosníu og Hersegóvínu, nr. 765/2014.
    Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.2.
  5. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Belarús, nr. 97/2012.
    Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.35 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.35.
  6. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Myanmar, nr. 278/2015.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.15 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.15.
    2.16 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.16.
  7. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Úkraínu, nr. 281/2014.
    Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    3.72 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 3.72.
  8. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Burundí, nr. 92/2016.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.4 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.4.
    2.5 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.5.
  9. Reglugerð um þvingunaraðgerðir í ljósi ástandsins í Venesúela, nr. 380/2018.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.13 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.13.
    2.13 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.13.
  10. Reglugerð um þvingunaraðgerðir gegn netárásum, nr. 795/2019.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.1.
    2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1.
  11. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Nicaragua, nr. 29/2020.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.1.
    2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1.
  12. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Líbanon, nr. 835/2015.
    Eftirfarandi töluliðir skulu bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    1.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 1.2.
    2.1 Reglugerð ráðsins (ESB) 2023/2694 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum reglugerðum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.1.
  13. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Moldóvu, nr. 291/2015.
    Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    2.2 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 2.2.
  14. Reglugerð um þvingunaraðgerðir varðandi Íran, nr. 384/2014.
    Eftirfarandi töluliður skal bætast við 1. mgr. 2. gr. reglugerðarinnar:

    5.1 Ákvörðun ráðsins (SSUÖ) 2023/2686 frá 27. nóvember 2023 um breytingu á tilteknum ákvörðunum ráðsins um þvingunaraðgerðir í því skyni að bæta við ákvæðum um undanþágur af mannúðarástæðum, sbr. fylgiskjal 5.1.

3. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi, sem er sett með heimild í 6. gr. laga um framkvæmd alþjóðlegra þvingunaraðgerða og frystingu fjármuna nr. 68/2023, öðlast þegar gildi.

Utanríkisráðuneytinu, 18. desember 2023.

Bjarni Benediktsson.

Anna Jóhannsdóttir.

Fylgiskjöl.
(sjá PDF-skjal)

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.