Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
1677/2023
Reglugerð um breytingu á byggingarreglugerð nr. 112/2012.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 2.3.6. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað orðanna "Hún skal vera í samræmi við" í 2. málsl. 1. mgr. kemur: Hún skal ekki vera í ósamræmi við.
- Við 1. mgr. bætist nýr stafliður, svohljóðandi: Smádreifistöðvar fyrir raforkudreifingu, dæluhús hita-, vatns- og fráveitu og önnur lítil hús veitukerfa sem eru að hámarki 15 m² og mesta hæð þaks er 2,5 m mælt frá yfirborði jarðvegs.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 1. mgr. 60. gr. laga um mannvirki, nr. 160/2010, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 20. desember 2023.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Hermann Sæmundsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.