Fara beint í efnið

Prentað þann 25. apríl 2024

Breytingareglugerð

1670/2021

Reglugerð um (3.) breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021.

1. gr.

2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo:

Einstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af COVID-19 með PCR-prófi skal vera í einangrun í 7 daga frá greiningu. Þó er læknum COVID-19 göngudeildar Landspítala heimilt að framlengja einangrun einstaklings með COVID-19 á grundvelli læknisfræðilegs mats. Að öðru leyti fer um afléttingu einangrunar eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis, sbr. fylgiskjal 2.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12., 13., 14. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi nú þegar og gildir um alla einstaklinga sem sæta einangrun við gildistöku. Þrátt fyrir ákvæði 2. mgr. 8. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað bindur reglugerð þessi alla þegar við birtingu.

Heilbrigðisráðuneytinu, 30. desember 2021.

Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.

Ásta Valdimarsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.