Prentað þann 8. mars 2026
1658/2025
Reglugerð um störf evrópsks hóps eftirlitsaðila á sviði fjarskipta (berec).
1. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi eftirtalin reglugerð sem vísað er til í XI. viðauka samningsins um Evrópska efnahagssvæðið, með þeim breytingum og viðbótum sem leiða af XI. viðauka samningsins, bókun 1 um altæka aðlögun og öðrum ákvæðum samningsins:
Reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2018/1971 frá 11. desember 2018 um að koma á fót evrópskum hópi eftirlitsaðila á sviði rafrænna fjarskipta (BEREC) og stofnun til að styðja við BEREC-hópinn (BEREC-skrifstofu), um breytingu á reglugerð (ESB) 2015/2120 og um niðurfellingu reglugerðar (EB) nr. 1211/2009, sem birtist í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 76, dagsett 22. febrúar 2024, á bls. 217-251, sbr. ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 274/2021 frá 24. september 2021.
2. gr.
Reglugerð þessi er sett með heimild í e-lið 1. mgr. 30. gr. laga um Fjarskiptastofu nr. 75/2021 og öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. desember 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 12. janúar 2026
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.