Prentað þann 18. mars 2026
1650/2024
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1200/2016, um húsnæðisbætur.
1. gr.
Tafla í 14. gr. reglugerðarinnar verður svohljóðandi:
| Fjöldi heimilismanna | Frítekjumörk m.v. árstekjur |
| 1 | 5.935.476 kr. |
| 2 | 7.894.184 kr. |
| 3 | 9.199.988 kr. |
| 4 | 9.971.600 kr. |
| 5 | 10.802.567 kr. |
| 6 eða fleiri | 11.633.533 kr. |
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er á grundvelli 4. mgr. 17. gr., sbr. 4. tölul. 1. mgr. og 2. mgr. 30. gr., laga um húsnæðisbætur, nr. 75/2016, öðlast gildi 1. janúar 2025 og gildir um húsnæðisbætur sem greiddar eru vegna leigu íbúðarhúsnæðis frá og með þeim degi.
Innviðaráðuneytinu, 20. desember 2024.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.