Prentað þann 25. nóv. 2024
1627/2021
Reglugerð um (11.) breytingu á reglugerð nr. 451/2013 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði sjúkratryggðra við tannlækningar.
1. gr.
Í stað "57%" í 2. tölul. 1. mgr. 6. gr. reglugerðarinnar kemur: 63%.
2. gr.
Í stað "50%" í 1. mgr. 11. gr. reglugerðarinnar kemur: 80%.
3. gr.
Í stað "50%" í 1. mgr. 12. gr. reglugerðarinnar kemur: 80%.
4. gr.
Í stað orðanna "1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021" í 2. málsl. 21. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr., 1. mgr. 29. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022.
Heilbrigðisráðuneytinu, 20. desember 2021.
Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.