Prentað þann 5. des. 2025
Breytingareglugerð
1567/2024
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð nr. 766/2024 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tannlækningar og tannréttingar.
1. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 15. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað fjárhæðarinnar "290.000 kr." í 1. tölul. 2. mgr. kemur: 310.000 kr.
- Í stað fjárhæðarinnar "430.000 kr." í 2. tölul. 2. mgr. kemur: 460.000 kr.
- Á eftir 6. mgr. kemur ný málsgrein, svohljóðandi: Hámarksgreiðslur Sjúkratrygginga skv. 2. mgr. skulu taka breytingum árlega í samræmi við verðlagsforsendur fjárlaga og námundaðar að næsta þúsundi.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 2. mgr. 20. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008, um sjúkratryggingar, öðlast gildi 1. janúar 2025.
Heilbrigðisráðuneytinu, 6. desember 2024.
Willum Þór Þórsson.
Sigurður Kári Árnason.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.