Prentað þann 28. des. 2024
1542/2021
Reglugerð um (5.) breytingu á reglugerð nr. 1245/2016 um dagdvöl aldraðra.
1. gr.
Í stað fjárhæðarinnar "1.281 kr." í 1. málsl. 5. gr. reglugerðarinnar kemur: 1.313 kr.
2. gr.
Í stað "1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021" í 3. málsl. 1. mgr. 7. gr. reglugerðarinnar kemur: 1. janúar 2022 til og með 31. desember 2022.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 29. gr. laga nr. 125/1999 um málefni aldraðra, með síðari breytingum, 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga nr. 112/2008 um sjúkratryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2022.
Heilbrigðisráðuneytinu, 10. desember 2021.
Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.