Prentað þann 6. mars 2026
1533/2025
Reglugerð um breytingu á ýmsum reglugerðum vegna afnáms b-faggildingar.
Efnisyfirlit
- I. KAFLI Breyting á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010.
- II. KAFLI Breyting á reglugerð um prófun á ökuritum nr. 572/1995.
- III. KAFLI Breyting á reglugerð um frágang á hraðatakmarkara í bifreið nr. 71/1998.
- IV. KAFLI Breyting á reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.
- V. KAFLI Gildistaka.
I. KAFLI Breyting á reglugerð um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit nr. 605/2010.
1. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Starfsleyfi sem þegar hafa verið útgefin á grundvelli B-faggildingar halda gildi sínu til 30. júní 2026 þrátt fyrir að B-faggilding hafi verið afturkölluð af faggildingarsviði Hugverkastofu.
II. KAFLI Breyting á reglugerð um prófun á ökuritum nr. 572/1995.
2. gr.
Í stað orðanna "31. desember 2025" í ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 30. júní 2026.
III. KAFLI Breyting á reglugerð um frágang á hraðatakmarkara í bifreið nr. 71/1998.
3. gr.
Við reglugerðina bætist nýtt ákvæði til bráðabirgða, svohljóðandi: Starfsleyfi sem þegar hafa verið útgefin á grundvelli B-faggildingar halda gildi sínu til 30. júní 2026 þrátt fyrir að B-faggilding hafi verið afturkölluð af faggildingarsviði Hugverkastofu.
IV. KAFLI Breyting á reglugerð um skoðun ökutækja nr. 414/2021.
4. gr.
Við ákvæði til bráðabirgða við reglugerðina bætist ný málsgrein, svohljóðandi: Starfsleyfi sem þegar hafa verið útgefin á grundvelli B-faggildingar halda gildi sínu til 30. júní 2026 þrátt fyrir að B-faggilding hafi verið afturkölluð af faggildingarsviði Hugverkastofu.
V. KAFLI Gildistaka.
5. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 54., 69. og 74. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 19. desember 2025.
Eyjólfur Ármannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.