Prentað þann 24. nóv. 2024
1519/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð um ökuskírteini, nr. 830/2011, með síðari breytingum.
1. gr.
Í stað orðanna "1. janúar 2023" í 5. mgr. ákvæðis til bráðabirgða við reglugerðina kemur: 1. janúar 2024.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á ákvæði til bráðabirgða II við reglugerðina:
- Í stað orðanna "31. desember 2022" í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 1. janúar 2024.
- Í stað orðanna "1. janúar 2023" í 2. mgr. kemur: 1. janúar 2024.
3. gr. Lagastoð og gildistaka.
Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 58., 62. og 64. gr. umferðarlaga nr. 77/2019, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Innviðaráðuneytinu, 22. desember 2022.
Sigurður Ingi Jóhannsson.
Ingilín Kristmannsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.