Prentað þann 7. apríl 2025
1515/2021
Reglugerð um gildistöku reglugerðar Evrópusambandsins um lágmarksupplýsingar tiltekins skjals sem birta skal vegna undanþágu frá lýsingu í tengslum við yfirtöku með skiptiútboði, samruna eða uppskiptingu.
1. gr.
Með reglugerð þessari öðlast gildi hér á landi framseld reglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2021/528 frá 16. desember 2020 um viðbætur við reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2017/1129 að því er varðar lágmarksupplýsingar tiltekins skjals sem birta skal vegna undanþágu frá lýsingu í tengslum við yfirtöku með skiptiútboði, samruna eða uppskiptingu. Reglugerðin var tekin upp í samninginn um Evrópska efnahagssvæðið með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 216/2021 frá 9. júlí 2021, með þeim aðlögunum sem leiðir af bókun 1 um altæka aðlögum við samninginn um Evrópska efnahagssvæðið, sbr. lög um Evrópska efnahagssvæðið nr. 2/1993. Reglugerðin er birt á bls. 334-348 í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 80 frá 16. desember 2021.
2. gr.
Reglugerð þessi sem sett er með heimild í 1. mgr. 19. gr. laga nr. 14/2020, um lýsingu verðbréfa sem boðin eru í almennu útboði eða tekin til viðskipta á skipulegum markaði, öðlast þegar gildi.
Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 20. desember 2021.
F. h. fjármála- og efnahagsráðherra,
Guðrún Þorleifsdóttir.
Benedikt Hallgrímsson.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.