Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 17. mars 2026

Stofnreglugerð

1507/2025

Reglugerð um heimild til flutnings á aflamarki í íslenskri sumargotssíld frá almanaksárinu 2025 yfir á almanaksárið 2026.

1. gr.

Heimilt er að flytja allt að 40% af óveiddu aflamarki í íslenskri sumargotssíld frá almanaksárinu 2025 til almanaksársins 2026.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett með heimild í 16. gr,. sbr. 3. mgr. 11. gr. laga nr. 116/2006, um stjórn fiskveiða. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Atvinnuvegaráðuneytinu, 29. desember 2025.

Hanna Katrín Friðriksson.

Skúli Kristinn Skúlason.

B deild - Útgáfudagur: 30. desember 2025

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.