Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 13. jan. 2022

1499/2021

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð um takmörkun á samkomum vegna farsóttar nr. 1484/2021.

1. gr.

Eftirfarandi breytingar verða á 3. gr. reglugerðarinnar:

  1. 3. mgr. verður svohljóðandi:
    Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er verslunum og söfnum heimilt að taka við 50 manns í rými og til viðbótar fimm viðskiptavinum á hverja 10 m² umfram 100 m², þó að hámarki 500 viðskiptavinum. Leitast skal við að viðhafa 2 metra nálægðartakmörkun þar sem fólk staldrar við í lengri tíma, svo sem í biðröðum á kassasvæðum.
  2. Á eftir orðunum "allir gestir" í 5. mgr. kemur: fæddir 2015 og fyrr.

2. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur gildi nú þegar.

Heilbrigðisráðuneytinu, 22. desember 2021.

F. h. heilbrigðisráðherra,

Ásta Valdimarsdóttir.

Ásthildur Knútsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.