Prentað þann 10. apríl 2025
1483/2021
Reglugerð um (2.) breytingu á reglugerð um sóttkví og einangrun og sóttvarnaráðstafanir á landamærum Íslands vegna COVID-19, nr. 1240/2021.
1. gr.
2. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar orðast svo: Einstaklingur sem er með staðfesta sýkingu af COVID-19 skal vera í einangrun í 10 daga frá greiningu. Læknum COVID-19 göngudeildar Landspítala er heimilt að stytta eða lengja einangrun á grundvelli læknisfræðilegs mats. Að öðru leyti fer um afléttingu einangrunar eftir leiðbeiningum sóttvarnalæknis, sbr. fylgiskjal 2.
2. gr.
8. gr. a reglugerðarinnar fellur brott.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með heimild í 12., 13., 14. og 18. gr. sóttvarnalaga nr. 19/1997, með síðari breytingum, tekur þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 20. desember 2021.
F.h. heilbrigðisráðherra,
Ásta Valdimarsdóttir.
Ásthildur Knútsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.