Fara beint í efnið
Fyrri útgáfa

Prentað þann 28. apríl 2024

Reglugerð með breytingum síðast breytt 20. jan. 2024

1470/2023

Reglugerð um innheimtu þinggjalda á árinu 2024.

1. gr.

Þinggjöld sem leggja skal á tekjur ársins 2023 og ekki hafa verið innheimt í staðgreiðslu skulu greidd á tíu gjalddögum á árinu 2024. Eru gjalddagar fyrsti dagur hvers mánaðar nema í janúar og í þeim mánuði sem álagningu lýkur samkvæmt ákvörðun fjármála- og efnahagsráðherra. Eindagi er mánuði eftir gjalddaga, sbr. þó 2. mgr. 4. gr.

2. gr.

Þar til álagning ársins 2024 liggur fyrir skal hver skattaðili greiða fyrir fram upp í álagningu ársins. Fyrirframgreiðslan skal á hverjum gjalddaga nema 8,5% af þinggjöldum ársins 2023. Við skiptingu á fjárhæðum í fyrirframgreiðslu og eftirstöðva álagningar skal við það miðað að ekki sé til innheimtu lægri fjárhæð en 5.000 kr. á hverjum gjalddaga.

Þau þinggjöld sem lögaðilar skulu greiða í fyrirframgreiðslu eru tekjuskattur, sérstakur fjársýsluskattur og sérstakur skattur á fjármálafyrirtæki.

Einstaklingar skulu fyrirframgreiða tekjuskatt og útsvar eftir því sem kveðið er á um.

3. gr.

Árlegir gjalddagar eftirtalinna gjalda eru sem hér segir:

Gjalddagar einstaklinga vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf. eru 1. júní, 1. júlí og 1. ágúst. Gjalddagi vegna gjalds í framkvæmdasjóð aldraðra, slysatryggingar vegna heimilisstarfa, ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu skal vera einn, þ.e. 1. júní.

Gjalddagi lögaðila vegna sérstaks gjalds til Ríkisútvarpsins ohf., ógreidds fjársýsluskatts og ógreidds tryggingagjalds, sem ríkisskattstjóri ákvarðar vegna hlunninda, og fjársýsluskatts og tryggingagjalds, sem undanþegið er staðgreiðslu er 1. nóvember.

4. gr.

Hafi skattar, þ.e. fyrirframgreiðsla og álögð gjöld, ekki verið greiddir innan mánaðar frá gjalddaga skal greiða ríkissjóði dráttarvexti af því sem gjaldfallið er frá gjalddaga.

Vanskil skattaðila að hluta á álögðum sköttum og gjöldum valda því að allir skattar skattaðilans falla í eindaga mánuði eftir gjalddaga vangoldinnar greiðslu, en þó ekki fyrr en mánuði eftir að álagningu er lokið.

5. gr.

Heimilt er skattaðila að sækja um lækkun á þeirri fjárhæð þinggjalda, sem honum hefur verið gert að greiða fram að álagningu ársins 2024 skv. 2. gr. Umsókn um slíka lækkun skal senda ríkisskattstjóra til ákvörðunar.

6. gr.

Ríkisskattstjóri skal að jafnaði ekki taka til greina umsókn skattaðila, sbr. 5. gr., nema þeir skattstofnar sem um ræðir fyrir tekjuárið 2023 séu meira en 25% lægri en þeir voru á tekjuárinu 2022. Frá þessari reglu má þó víkja ef sérstaklega stendur á að mati ríkisskattstjóra.

Ríkisskattstjóra er heimilt að setja nánari reglur um ákvörðun á takmörkun greiðsluskyldu og önnur atriði varðandi framkvæmd þessarar greinar.

7. gr.

Ákvörðun varðandi umsókn um lækkun á fyrirframgreiðslu skal ríkisskattstjóri tilkynna skattaðila eins fljótt og unnt er og ef fallist er á umsókn skal niðurstaða einnig tilkynnt innheimtuaðila.

8. gr.

Um greiðslur þinggjalda á árinu 2024 fer að öðru leyti samkvæmt ákvæðum XIII. kafla laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, og laga um innheimtu opinberra skatta og gjalda, nr. 150/2019.

9. gr.

Reglugerð þessi, sem sett er samkvæmt heimild í 112. og 121. gr. laga um tekjuskatt, nr. 90/2003, öðlast þegar gildi.

Ákvæði til bráðabirgða

Þrátt fyrir almenn ákvæði reglugerðar þessarar um skyldu til fyrirframgreiðslu, innan mánaðar frá gjalddaga, sbr. ákvæði 4. gr., er heimilt, sbr. 5. gr., að lækka eða fella niður fyrirframgreiðslu tekjuskatts, samkvæmt lögum um tekjuskatt, nr. 90/2003, upp í álagningu 2024, án tillits til þeirra skilyrða sem sett eru í 6. gr., hjá þeim sem hafa orðið fyrir röskun á starfsemi sinni í Grindavíkurbæ vegna náttúruhamfara. Ákvæði þetta á ekki við um fyrirframgreiðslu sérstaks fjársýsluskatts og sérstaks skatts á fjármálafyrirtæki.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.