Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
1468/2023
Reglugerð um (7.) breytingu á reglugerð nr. 1239/2018 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað "31. desember 2023" í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2024.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 7. desember 2023.
Willum Þór Þórsson.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.