Fara beint í efnið

Prentað þann 20. apríl 2024

Brottfallin reglugerð felld brott 16. des. 2022

1466/2021

Reglugerð um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2021 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

1. gr. Jöfnun örorkubyrði lífeyrissjóða.

Stuðla skal að því að mismunandi örorkubyrði lífeyrissjóða verði jöfnuð eins og nánar greinir í reglugerð þessari. Ríkissjóður veitir árlegu fjárframlagi til lífeyrissjóða til þess að ná því markmiði samkvæmt ákvæðum VI. kafla laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum.

Í samræmi við VI. kafla laga nr. 113/1990, skal fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2021 nema 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds skv. III. kafla laga nr. 113/1990. Framlagið skal byggjast á upplýsingum ríkisreiknings um áætlaðan gjaldstofn tryggingagjalds næstliðins árs.

Fjármála- og efnahagsráðuneytið annast úthlutun og greiðslu framlags til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða samkvæmt reglugerð þessari.

2. gr. Skipting framlagsins milli lífeyrissjóða.

Framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða skal skipt milli lífeyrissjóða með eftirfarandi hætti:

  1. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í heildarörorkulífeyrisgreiðslum allra lífeyrissjóða á næstliðnu ári.
  2. Fundin er hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í skuldbindingum lífeyrissjóða til greiðslu örorku-lífeyris umfram 10% af heildarlífeyrisskuldbindingum sjóðanna í framtíðinni vegna væntanlegra iðgjalda miðað við tryggingafræðilega stöðu lífeyrissjóða við lok næstliðins árs. Nú hefur lífeyrissjóður nýtt heimild samkvæmt lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, nr. 129/1997, til þess að ákveða lágmark tryggingaverndar þannig að iðgjaldi sé varið að hluta til öflunar lífeyrisréttinda í séreign og skal þá verðmæti iðgjaldsgreiðslna vegna réttinda sem aflað er í séreign talið til skuldbindinga sjóðsins í framtíðinni þegar fundin er hlutdeild sjóðsins skv. 1. málsl.
  3. Meðaltalshlutfall skv. 1. og 2. tölul. myndar hlutdeild hvers lífeyrissjóðs í framlagi til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða.

3. gr. Úthlutun fjárframlags árið 2021.

Samkvæmt 19. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, skal fjárframlag til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2021 renna til lífeyrissjóða sem hafa starfsleyfi frá fjármála- og efnahagsráðherra, sbr. ákvæði laga nr. 129/1997, um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða. Áætlaður gjaldstofn tryggingagjalds árið 2020 nemur samkvæmt ríkisreikningi 2020 samtals kr. 1.495.002.450.258 og er áætlað fjárframlag ársins 2020 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða því með vísan til 1. gr. samtals kr. 4.858.757.963 og skiptist það milli lífeyrissjóða sem hér segir:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 27.038.988 0,557%
Birta lífeyrissjóður 166.655.398 3,430%
Eftirlaunasjóður FÍA 9.061.584 0,187%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 1.992.091 0,041%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 3.352.543 0,069%
Festa lífeyrissjóður 627.702.941 12,919%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 126.740.701 2,609%
Gildi lífeyrissjóður 1.978.583.418 40,722%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 44.882.042 0,923%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 1.992.091 0,041%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 21.159.891 0,436%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 11.903.957 0,245%
Lífeyrissjóður bænda 15.280.794 0,315%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 340.113 0,007%
Lífeyrissjóður Rangæinga 29.541.248 0,608%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 3.255.368 0,067%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 3.644.068 0,075%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 1.530.509 0,032%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 4.057.063 0,084%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 24.706.784 0,509%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 310.644.690 6,394%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 129.000.024 2,655%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 159.415.849 3,281%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 68.872.894 1,418%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 2.380.791 0,049%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 2.769.492 0,057%
Lífsverk lífeyrissjóður 11.709.607 0,241%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 370.334.532 7,622%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 103.054.256 2,121%
Stapi lífeyrissjóður 528.146.991 10,870%
SL lífeyrissjóður 69.067.244 1,422%

Samtals


4.858.757.963


100,000%

Við greiðslu fjárframlags ársins 2022, í október 2022, skal endurreikna, og leiðrétta ef þörf er á, fjárframlag ársins 2021 á grundvelli endurskoðaðra upplýsinga um gjaldstofn tryggingagjalds ársins 2020.

4. gr. Leiðrétting fjárframlags ársins 2020.

Endurskoðaður gjaldstofn tryggingagjalds vegna ársins 2019 er kr. 1.579.285.124.365. Mismunur áætlaðs gjaldstofns tryggingagjalds ársins 2019 skv. 3. gr. reglugerðar nr. 1252/2020, um úthlutun og greiðslu fjárframlags ársins 2020 til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða, og endurskoðaðs gjaldstofns tryggingagjalds vegna ársins 2019 er kr. 4.200.202.610 til lækkunar. Fjárframlag ríkissjóðs til jöfnunar örorkubyrði lífeyrissjóða fyrir árið 2020 nam 0,325% af gjaldstofni tryggingagjalds, sbr. lög nr. 177/2006, um breyting á lögum nr. 113/1990, um tryggingagjald. Leiðrétting fjárframlags ársins 2020, frá því sem það var ákvarðað með reglugerð nr. 1252/2020, nemur því samtals kr. 13.650.659 til lækkunar. Áætlað fjárframlag ársins 2021 eins og það er ákvarðað skv. 3. gr. lækkar þær fjárhæðir sem tilgreindar eru í eftirfarandi töflu:

Lífeyrissjóður Fjárhæð kr. Hlutfall
Almenni lífeyrissjóðurinn 69.482 0,509%
Birta lífeyrissjóður 483.438 3,542%
Eftirlaunasjóður FÍA 26.619 0,195%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L060EsRb 2.525 0,019%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L050EsH 13.378 0,098%
Festa lífeyrissjóður 1.978.254 14,492%
Frjálsi lífeyrissjóðurinn 379.693 2,782%
Gildi lífeyrissjóður 5.260.965 38,540%
Íslenski lífeyrissjóðurinn 115.689 0,848%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L140LsA 6.279 0,046%
Lífeyrissjóður bankamanna-aldur 57.811 0,424%
Lífeyrissjóður bankamanna-hlutfall 46.958 0,344%
Lífeyrissjóður bænda 49.415 0,362%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L510LsN 1.024 0,008%
Lífeyrissjóður Rangæinga 96.237 0,705%
Lífeyrissjóður starfsmanna Akureyrarbæjar 8.736 0,064%
Lífeyrissjóður starfsm. Búnaðarbanka Íslands hf. 8.941 0,066%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L600LsH 4.436 0,033%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L400LK 8.532 0,063%
Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar 70.642 0,518%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-A 841.904 6,168%
Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins-B 417.642 3,060%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-A 390.136 2,858%
Lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga-V 183.670 1,346%
Brú, lífeyrissj. starfsm. sveitarfélaga-B L700LsV 6.075 0,045%
Lífeyrissjóður Tannlæknafélags Íslands 5.460 0,040%
Lífsverk lífeyrissjóður 37.266 0,273%
Lífeyrissjóður verslunarmanna 1.000.798 7,332%
Lífeyrissjóður Vestmannaeyja 303.249 2,222%
Stapi lífeyrissjóður 1.594.397 11,680%
SL lífeyrissjóður 181.008 1,326%

Samtals


13.650.659


100,000%

5. gr. Gildistaka o.fl.

Reglugerð þessi er sett með stoð í 22. gr. laga nr. 113/1990, um tryggingagjald, með síðari breytingum, og öðlast þegar gildi. Jafnframt er felld úr gildi eldri reglugerð nr. 1252/2020 sama efnis.

Fjármála- og efnahagsráðuneytinu, 1. desember 2021.

F. h. r.

Guðrún Þorleifsdóttir.

Anna V. Ólafsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.