Prentað þann 22. des. 2024
Breytingareglugerð
1458/2021
Reglugerð um (4.) breytingu á reglugerð nr. 1239/2018 um þátttöku sjúkratrygginga í kostnaði við tæknifrjóvganir sem veittar eru án samnings við Sjúkratryggingar Íslands.
1. gr.
Í stað "31. desember 2021" í 2. málsl. 1. mgr. 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 31. desember 2022.
2. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 19. gr., 2. mgr. 38. gr. og 55. gr. laga um sjúkratryggingar, nr. 112/2008, með síðari breytingum, öðlast þegar gildi.
Heilbrigðisráðuneytinu, 1. desember 2021.
Willum Þór Þórsson
heilbrigðisráðherra.
Guðlaug Einarsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.