Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 26. mars 2025

Stofnreglugerð Reglugerð án breytinga, sjá breytingasögu.

1441/2024

Reglugerð um úthlutun aflamarks í grásleppu til nýliða.

1. gr. Gildissvið.

Reglugerð þessi gildir um úthlutun aflamarks í grásleppu til skipa í eigu nýliða samkvæmt 7. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006.

2. gr. Nýliði.

Nýliði samkvæmt reglugerð þessari telst sá aðili sem á skip, sem ekki hefur skráða aflahlutdeild og hefur ekki fengið úthlutað aflahlutdeild í grásleppu vegna fiskveiðiársins 2024/2025.

3. gr. Auglýsing og umsókn um aflamark í grásleppu.

Fiskistofa auglýsir eftir umsóknum um aflamark í grásleppu fyrir skip í eigu nýliða á hverju fiskveiðiári.

Aflamark í grásleppu til úthlutunar til nýliða er miðað við það magn sem tilgreint er í reglugerð um veiðar í atvinnuskyni sem gildir fyrir viðkomandi fiskveiðiár og almanaksár.

Umsókn skal skilað á því formi sem Fiskistofa ákveður. Í umsókn um aflamark í grásleppu til nýliða skulu eftirfarandi upplýsingar koma fram:

  1. Nafn, kennitala og lögheimili umsækjanda.
  2. Fiskiskip sem óskað er að aflamark verði skráð á.
  3. Á hvaða staðbundna veiðisvæði fiskiskip muni stunda veiðar.

4. gr. Úthlutun aflamarks.

Aflamarki í grásleppu til nýliða skv. 7. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða skal Fiskistofa úthluta árlega til skipa í eigu nýliða skv. 2. gr.

Fiskistofa skal úthluta aflamarki í grásleppu til skips nýliða á grundvelli umsókna skv. 3. gr. Aflamark í grásleppu skal skiptast jafnt á milli nýliða. Hver nýliði getur að hámarki fengið 0,4% af aflamarki leyfilegs heildarafla í grásleppu á viðkomandi fiskveiðiári úthlutað á skip.

Eftirstöðvum óráðstafaðs aflamarks í grásleppu til nýliða skal Fiskistofa ráðstafa til skipa með aflahlutdeild í grásleppu á þeim degi sem úthlutun aflamarks til nýliða fer fram.

5. gr. Gildistaka.

Reglugerð þessi er sett skv. 2. mgr. 7. gr. laga um veiðar í fiskveiðilandhelgi Íslands, nr. 79/1997 og 6. mgr. 8. gr. laga um stjórn fiskveiða, nr. 116/2006. Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 25. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Áslaug Eir Hólmgeirsdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.