Prentað þann 26. des. 2024
1441/2022
Reglugerð um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
1. gr.
Í stað "4.179 kr." í 3. gr. reglugerðarinnar kemur: 4.488 kr.
2. gr.
Eftirfarandi breytingar verða á 5. gr. reglugerðarinnar:
- Í stað "1.032.468 kr." í 1. málsl. 1. mgr. kemur: 1.108.872 kr.
- Í stað "1.588.412 kr." í 2. málsl. 1. mgr. kemur: 1.705.957 kr.
3. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 10. mgr. 48. gr., sbr. 70. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 622/2022, um breytingu á reglugerð nr. 1255/2016, um ráðstöfunarfé og dagpeninga samkvæmt lögum um almannatryggingar.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 20. desember 2022.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.