Prentað þann 5. des. 2025
1439/2022
Reglugerð um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2023.
1. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:
| frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | |||
| a. | Vegna fjármagnstekna skv. a-lið 2. mgr. 16. gr. | 98.640 | ||
| b. | Tekjutrygging vegna atvinnutekna | |||
| skv. ákvæði til bráðabirgða | 2.400.000 | |||
| c. | Ellilífeyrir skv. 1. mgr. 23. gr. | |||
| i. | Almennt | 300.000 | 8.508.773 | |
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
| d. | Hálfur ellilífeyrir skv. 2. mgr. 23. gr. | |||
| i. | Almennt | 3.900.000 | 8.004.400 | |
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
| g. | Örorkulífeyrir skv. 5. mgr. 18. gr. | 2.575.220 | 10.338.153 | |
| h. | Örorkustyrkur skv. 1. mgr. 19. gr. | 2.575.220 | 10.226.953 | |
| i. | Örorkustyrkur skv. 2. mgr. 19. gr. | 2.575.220 | 10.338.153 | |
| j. | Aldurstengd örorkuuppbót (100%) | |||
| skv. 1. mgr. 21. gr. | 2.575.220 | 10.338.153 | ||
| k. | Tekjutrygging vegna lífeyrissjóðstekna | |||
| skv. 3. mgr. 22. gr. | 328.800 | |||
| l. | Ráðstöfunarfé skv. 8. mgr. 48. gr. | 1.705.957 | ||
2. gr.
Frítekjumörk (tekjumörk) bóta samkvæmt lögum nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:
| frítekjumark kr. | efra tekjumark kr. | |||
| a. | Endurhæfingarlífeyrir skv. 3. mgr. 7. gr. | 2.575.220 | 10.338.153 | |
| b. | Heimilisuppbót með ellilífeyri skv. 2. mgr. 8. gr. | |||
| i. | Almennt | 300.000 | 8.144.067 | |
| ii. | Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
| iii. | Með hálfum ellilífeyri | 3.900.000 | 7.822.084 | |
| iv. | Með hálfum ellilífeyri vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
| c. | Heimilisuppbót með örorkulífeyri skv. 3. mgr. 8. gr. | |||
| i. | Vegna atvinnutekna | 2.400.000 | ||
| ii. | Vegna lífeyrissjóðstekna | 328.800 | ||
| d. | Sérstök uppbót vegna framfærslu skv. 2. mgr. 9. gr.: | |||
| i. | Til lífeyrisþega sem fær greidda heimilisuppbót | | ||
| ii. | Til lífeyrisþega sem fær ekki greidda heimilisuppbót | | ||
3. gr.
Tekjumörk bóta samkvæmt reglugerð nr. 1200/2018, um heimilisuppbót og uppbætur á lífeyri, skulu vera sem hér segir fyrir árið 2023:
| efra tekjumark kr. | ||
| Frekari uppbætur skv. 11. gr. | 3.562.652 |
4. gr.
Frítekjumark: Með frítekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem ekki hefur áhrif á bætur.
Efra tekjumark: Með efra tekjumarki er í reglugerð þessari átt við fjárhæð tekna á ári sem veldur því að bætur falla niður.
5. gr.
Reglugerð þessi, sem sett er með stoð í 70. gr., sbr. 69. gr., laga nr. 100/2007, um almannatryggingar, með síðari breytingum, og 14. gr. laga nr. 99/2007, um félagslega aðstoð, með síðari breytingum, öðlast gildi 1. janúar 2023. Frá sama tíma fellur úr gildi reglugerð nr. 617/2022, um fjárhæðir frítekjumarka (tekjumarka) almannatrygginga og félagslegrar aðstoðar fyrir árið 2022.
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu, 20. desember 2022.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson.
Jóna Guðný Eyjólfsdóttir.
Fyrirvari
Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.
Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.