Fara beint í efnið

Ísland.is appið

Með ríkið í vasanum

Prentað þann 2. apríl 2026

Breytingareglugerð

1412/2024

Reglugerð um (1.) breytingu á reglugerð nr. 684/2024 um gildistöku framkvæmdarreglugerðar framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2023/2782 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum og um niðurfellingu á reglugerð (EB) nr. 401/2006.

1. gr.

Við 1. gr. reglugerðarinnar bætist nýr töluliður, 2. tölul., svohljóðandi:

  1. Framkvæmdarreglugerð framkvæmdastjórnarinnar (ESB) 2024/885 frá 20. mars 2024 um breytingu á framkvæmdarreglugerð (ESB) 2023/2782 um aðferðir við sýnatöku og greiningu vegna eftirlits með innihaldi sveppaeiturs í matvælum að því er varðar aðferð við sýnatöku úr þurrkuðum kryddjurtum, jurtatei (þurrkuð vara), tei (þurrkuð vara) og kryddi í duftformi. Reglugerðin var felld inn í EES-samninginn með ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 55/2024 frá 15. mars 2024. Reglugerðin er birt í EES-viðbæti við Stjórnartíðindi Evrópusambandsins nr. 85 frá 21. nóvember 2024, bls. 428.

2. gr.

Reglugerð þessi er sett samkvæmt heimild í 31. gr. a laga um matvæli, nr. 93/1995.

Reglugerðin öðlast þegar gildi.

Matvælaráðuneytinu, 29. nóvember 2024.

Bjarni Benediktsson.

Svava Pétursdóttir.

Fyrirvari

Reglugerðir eru birtar í B-deild Stjórnartíðinda skv. 3. gr. laga um Stjórnartíðindi og Lögbirtingablað, nr. 15/2005, sbr. reglugerð um útgáfu Stjórnartíðinda nr. 958/2005.

Sé misræmi milli þess texta sem birtist hér í safninu og þess sem birtur er í útgáfu B-deildar Stjórnartíðinda skal sá síðarnefndi ráða.